Brunavarnir Suðurnesja 2025

 

MYNDASAFN

 

Brunavarnir Suðurnesja

MERCEDES-BENZ 519, sjálfskiptur 9 gírar 9G - Tronic, 190 hestöfl 4X4 4 Matic á 33" dekkjum. Burðargeta 2.226 kg., Vél 2,0 Dísel Euro 6 190 hö og tog 450Nm. Öryggiskerfi ABS, ESP, EBC, EBD, TCS, HBA. Langur, háþekja og RAL3000 rauður. Rennihurðir beggja megin.

Áhafnar og flutningsrými klætt með góðri hljóðdempun. Klæðning í lofti. Milliþil milli flutningsrýmis og áhafnarrýmis. Í áhafnarrými eru þrjú vönduð sæti með örmum og 3ja punkta öryggisbeltum. Fatahankar á milliþili.

Vinnulýsing á hliðum og að aftan. Bakkmyndavél. Bláljós í framgrilli, að aftan á þaki og einnig ljósarenna á þaki

Að aftan tvískipt vörulyfta ZHZ500 t. með fjarstýringu.

Bifreiðin verður í verkefnum eins og að bregðast við vatslekum, flutningi á slöngum eftir slökkvistarf og margt fleira