Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins 2024

 

Myndasafn

Mercedes Sprinter slökkvibifreið

MERCEDES BENZ SPRINTER 519 4X4 með ályfirbyggingu og 1000 l. vatnstanki

 

Tæknilegar upplýsingar:
MERCEDES-BENZ 519, sjálfskiptur 9 gírar Tronic, 4X4 4 Matic, sumardekk. Leyfileg hámarksþyngd: 5500kg., Vél 2,0 Dísel Euro 6 190 hö og tog 450Nm. Öryggiskerfi ABS, ESP, EBC, EBD, TCS, HBA. Lengd 6,65m; Breidd 2,6m; Hæð 2,1m.

Mannskapshús:
Venjulegt Mercedes-Benz fjögurra dyra hús og farþegar 2 + 4. Sæti klædd vistvænu leðri. Rafdrifnar rúður í framrými. Sjálfvirk loftkæling Thermotronic. Miðstöð til upphitunar húss og vélar. Fjölnotastýri. Bíltölva. Útvarp með SD, USB rauf og Bluetooth. Leslampi. Samlæsingarkerfi. Handfangsstöng á milli sæta fram og aftur í.

MB Sprinter slökkvibifreið

LED ljós að framan. Halogen þokuljós með beygjuljósum. Rafmagnsfellanlegir og stillanlegir speglar með bláum blikkljósum. Á þaki LED blikkljósabar og LED kastari fyrir framan. Sett af LED blikkljósum í grillinu og á hliðum yfirbyggingar. Sett af LED stefnuljósum á frambrettum. Sett af HALO BLITZ ljósum á afturhlið (stöðuljós + flass). LED Blátt blikkljós er á afturhlið. Sírena 150W með mismunandi tónum. 150W Hátalari. Endurskinsmerki á öllum hliðum ökutækis. Merking með auðkenningareiningum.

 

Mercedes Sprinter slökkvibifreið


Yfirbygging:
Ályfirbygging með álrömmum sem eru soðnir saman með millirömmum. Hliðarplötur og þak úr áli. Innri klæðning er eingöngu úr áli. 5 skápar í efri hluta yfirbyggingar. 4 skápar í neðri hluta yfirbyggingar. Hlera fyrir neðri skápa má nota sem ástigspalla sem auðvelda aðgang að efri hluta yfirbyggingar. Hæðarstillanlegar hillur fyrir búnað. LED Ljós inni í öllum skápum. Þak yfirbyggingar er um leið vinnupallur með hálkuvörn og LED vinnulýsingu. LED Vinnuljós á hliðum ökutækisins, mannskapshúsi og yfirbyggingu alls 7 stk. Ryk- og vindþéttar rennihurðir úr áli með hurðaslám, upprennifjöðrum og læsanlegar. Krómhúðaður þakstigi og þrepin með hálkuvörn. Krómhúðað þakhandrið að aftan.

Mercedes Bens Slökkvibifreið

Dælubúnaður:
One Seven OS-900 TeC en þessi gerð er gerð fyrir minni bíla. Sjálfstæð með bensínvél og loftþjöppu. Þjappan gefur 780 l/mín við 8 bör. Afkastageta með froðublöndu 900 l/mín. Blöndunarhlutfall 0,2 til 2%. Ef eingöngu dælt vatni er afkastagetan 170 l/mín. Stýribúnaður er í 4,3“ skjá með öllum aðgerðum. Eitt Inntak  og úttak 1,5“. Þyngd 220 kg. Stærð L 1030 x B650 x H800mm.

MB Sprinter slökkvibifreið

Vatns- og froðukerfi:
Vatnstankur 1000 lítra úr tæringarþolnum efnum með vatnshæðarmæli. Froðutankur 100 lítra úr tæringarþolnum efnum með froðumagnmæli. Miðstöð í yfirbyggingu (staðsett í dælurými)

Búnaður:
Rafdrifið spil með toggetu upp á tæp 6 tonn (5897 kg), stjórnað með snúrutengdri  fjarstýringu og þráðlausri viðbótarfjarstýringu í kassa framan á ökutækinu. Hlífðargrind krómhúðuð, með langdrægum LED ljóskösturum  og stöðuljósum. Loftdrifið ljósamastur með stýribúnaði í skáp í yfirbyggingu. LED flóðljós 2 x 180W. Tenging fyrir húsarafmagn 230V/50Hz til hleðslu á geymum. Sjálfvirkur vaktari 12V DC hleðslutæki.

Laus búnaður:
4stk Interspiro Incurve/Inspire Reykköfurnartæki 2ja kúta tæki með Spirocom fjarskiptabúnaði. Holmatro Pentheon, Klippur PCU50, Holmatro Pentheon Glennur PSP50, Holmatro Pentheon Tjakkur PTR51 ásamt hleðslutækjum og rafhlöðum. Holmatro HLB lyftipúðar, slöngur og HDC12 stjórnborð. BlowHard Comando blásari. 6 kg. Duftslökkvitæki, 6 l. Léttvatnsslökkvitæki og 3 stk. Sinuklöppur.

Mercedes Sprinter slökkvibifreið