|
Samanbrjótanlegar börur MS-FL003 Samanbrjótanlegar stálstyrktar álbörur sem þola mikinn þunga. Vönduð taska fylgir með til flutnings og geymslu á börunum. Appelsínugult hágæða PVC undirlag, eldþolið, vatnsþolið, órífanlegt og auðvelt að þrífa.
Stærð: 2140x540x130mm Hámarkshleðsluþyngd: 159kg Heildarþyngd: 8kg
Vnr. 500010 Verð án VSK kr. 26.252.- |
|
Staflanlegar börur MS-FL001 Hönnun auðveldar geymslu og pökkun, þessum börum má auðveldlega stafla mörgum saman til geymslu í litlu plássi. Léttar og auðveldar í notkun, ekki samanbrjótanlegar. Rammi úr sterkbyggðu áli. Börurnar eru með tvær fljótlosanlegar ólar sem tryggja öryggi sjúklings í flutningum. Appelsínugult PVC undirlag, eldþolið, vatnsþolið, órífanlegt og auðvelt að þrífa.
Stærð: 1860x480x180mm Hámarkshleðsluþyngd: 170kg Heildarþyngd: 11kg.
Vnr. 500008 Verð án VSK kr. 23.865.- |
|
Samanbrjótanlegar börur MS-FL002 Samanbrjótanlegar börur, styrktar með tveimur stálstöngum sem leyfir flutning á miklulm þunga. Þar sem þær eru samanbrjótanlegar eru þær mjög auðveldar í geymslu. Appelsínugult hágæða PVC undirlag, eldþolið, vatnsþolið, órífanlegt og auðvelt að þrífa. Stærð: 2060x520x140mm Hámarkshleðsluþyngd: 159kg Heildarþyngd: 11kg
EKKI VENJULEGA Á LAGER |
|
Beddar í sjúkratjöld Samanbrjótanlegar beddar úr slitsterku efni vatnsvörðu og leðurefni á brúnum. Auðveldir í uppsetningu og hægt að brjóta saman í geymslu. Auðvelt að þrífa.
Stærð: 1900x650x420mm Hámarkshleðsluþyngd: 159kg Heildarþyngd: 8kg
Vnr. 500012 Verð án VSK kr. 22.945.- |
|
Burðardúkur 22014 Mjúka yfirfærslulakið umvefur sjúklinginn þegar því er lyft. Fljótlegur og öruggur flutningur á sjúklingi. Fyrirferðalítið og létt, aðeins 730gr. Gert úr appelsínugulum vinyl og með 1” svörtum polypropylene höldum sem fara vel í hendi. Burðargeta laksins er allt að 250kg
Efni: Vinyl í rauðu og kóngabláu Stærð: 70 x 77,5cm
Vnr. 500160 Verð án VSK kr. 3.275.-
|
|
SVEG Sveigjanlegar plast börur EMS-A407 Börur til notkunar við þröngar og erfiðar astæður. M.a. í vatni. Úr sérstöku plastefni sem er bæði sterkt og sveigjanlegt. Með börunum er nauðsynlegur fylgibúnaður.
Burðarþyngd 200kg. Eigin þyngd 11kg. Stærð 244 x 92 sm. Samanpökkuð stærð 92 x 32 sm.
Vnr. 500017 Verð án VSK kr. 140.383.- |
|
Skel - börur BS2000 Sömu eiginleikar og í teg. BS1000. Þessum börum er hægt að skipta í tvennt, látið þannig lítið fara fyrir þeim og því auðveldar í flutningi.
Stærð: 2190x640x180mm Hámarkshleðsluþyngd: 272kg Heildarþyngd: 20kg
Vnr. 500015 Verð án VSK kr. 135.574.- |
|
Skel - börur BS1000 Börurnar voru hannaðar með tilliti til neyðarástands og því eru þær sterkbyggðar og liprar í notkun. Henta sérlega vel við erfiðustu aðstæður. Sérstakar ólar gera börurnar ákjósan- legar til lyftu og flutnings með þyrlu. Börurnar eru með stillanlegan fótaöryggisbúnað, öryggisólar og dýnu. Framleitt úr slitsterkum efnum sem eru eldþolin og losa ekki frá sér eiturefni né menga.
Stærð: 2190x640x180mm Hámarkshleðsluþyngd: 272kg Heildarþyngd: 16kg EKKI VENJULEGA Á LAGER |
|
Skel - börur BS4000 Þessar börur geta flotið á vatni með 120kg. Stærð: 2180x1090x200mm Hámarkshleðsluþyngd: 272kg Heildarþyngd: 20kg EKKI VENJULEGA Á LAGER |
|
Körfubörur BS6000 Þessar börur eru hannaðar með tilliti til sérstakra neyðaraðstæðna, s.s. á fjöllum, í lofti og á sjó. Þær eru sterkbyggðar og liprar í notkun, fljótvirkur og áreiðanlegur útbúnaður gerir björgunarfólki kleift að afhafna sig hratt og örugglega. Sérstakar ólar gera börurnar ákjósanlegar til lyftu og flutnings með þyrlu. Börurnar eru með stillanlegt fótaöryggi, tvær öryggisólar og dýnu. Þær eru búnar til úr ryðfríum stálrörum og neti, þær ryðga ekki og skaða ekki sjúklinginn. Þær eru sterkari en venjulegar körfubörur og hægt er að nota þær ásamt hryggspjaldi. Hægt er að skipta þeim í tvo hluta, svo auðveldara sé að bera þær og geyma.
Stærð: 2190x690x190mm Hámarkshleðsluþyngd: 408kg Heildarþyngd:: 22kg EKKI VENJULEGA Á LAGER |
|
Sjúkrabörur MS-ASL-6 Hinar álmálmblönduðu sjálfvirku sjúkrabörur er unnt að stilla á ótal vegu til þæginda fyrir sjúkling í flutningi. Möguleikinn á að breyta í stól gerir kleift að nota þær í þrengri rýmum s.s. göngum og lyftum þar sem venjulegar börur komast ekki að. Stiglaus stilling á börunum í setstöðu. Fjórskipt svört dýna og hugvitsamleg hönnun er í fullkomnu samræmi við auknar kröfur markaðarins. Nýr hleðslubúnaður með 4 jafnvægishjólum leyfir hleðslu á börunum fyrir mismunandi gólfhæð sjúkrabifreiða.
Stærð: 1920×530×880 mm Hámarkshleðsluþyngd 159kg Heildarþyngd: 40kg EKKI VENJULEGA Á LAGER |
|
Sjúkrabörur MS-ASL-9 Hinar fjölvirku og sjálfvirku börur hafa margar hæðarstillingar. Mjög auðvelt er að breyta legustellingum. Börurnar fullnægja bráðameð- höndlun við erfiðar aðstæður, þær henta einstaklega vel í sjúkrabifreiðar. Hægt er að taka bekkinn af grindinni.
Hámarks stærð: 1980×530×980mm Lágmarks stærð: 1980×530×340mm Sex þrepa hæðarstillling: 980/940/870/770/600/340mm Heildarþyngd: 45kg Hámarkshleðsluþyngd:≤159kg EKKI VENJULEGA Á LAGER |