Böðvari í Eldvörn þökkuð næstum 17 ára viðskipti

Í næstum 17 ár höfum við átt farsæl og ánægjuleg viðskipti við Böðvar Jóhannesson í Eldvörn á Akranesi.
Hann hefur nú selt fyrirtækið og nýjir eigendur tekið við. Við óskum þeim alls hins besta og vonum, að við munum eiga jafn farsæl og löng viðskipti eins og við Böðvar.

Á Þorláksmessu heimsótti Böðvar okkur ásamt Elsu konu sinni og nokkrum barnabörnum og áttum við þá möguleika á að þakka honum samskiptin. Myndin hér að neðan er af Böðvari, barnabarni og Benedikti.

Það er von og ósk okkar að Böðvar eigi tök á að kíkja til okkar annað veifið, en eflaust eru verkefnin nóg framundan enda hefur maðurinn aldrei setið auðum höndum.




.....Slökkvitæki, slökkvitækjaþjónusta, reykskynjarar, eldvarnateppi, brunaslönguhjól, gaskynjarar, kolsýrlingsskynjarar, fellistigar, keðjustigar, lyfjaskápar, neyðarljós, neyðarmerki.....