Ný heimasíða Brunavarna Árnessýslu

Glæsileg heimasíða Brunavarna Árnessýslu hefur nú litið dagsins ljós. Fróðlegt verður að fylgjast með fréttum og nýjungum hjá þeim í framtíðinni.
Þeir eru að fá á næstunni glæsilega bifreið til viðbótar í flotann og frétt þar um er á síðunni. Við eigum afskaplega góð samskipti og viðskipti við Brunavarnir Árnessýslu og vonum að svo verði áfram.

Þeir hafa á undanförnum árum endurnýjað bifreiðar í öllum slökkvistöðvum sínum og t.d frá okkur hafa þeir fengið fimm slökkvibifreiðar og þar af fjórar frá Wawrzaszek í Póllandi. Þeir voru fyrstu viðskiptavinir þeirra hér.

Smellið á myndina og heimsækið heimasíðu þeirra.