Þráðlausir reykskynjarar

Við munum bjóða á haustmánuðum  þráðlausa reykskynjara af öllum gerðum þ.e. optíska, jóníska og hitaskynjarar en undanfarið höfum við aðeins getað boðið þráðlausa optíska skynjara.
Við eigum væntanlega fyrstu sendingu nú í septemberlok en sýnishorn eru komin og líst okkur mjög vel á.  Við tökum nú þegar niður pantanir.

Verð er ekki tilbúið en það  mun lækka á optískum reykskynjurum og eins á þráðlausa búnaðnum all nokkuð frá því sem nú er.

Íslenskar leiðbeiningar verða með hverjum skynjara og sendibúnaði  í kassa og umbúðir verða áletraðar á íslensku. Þetta er líklega í fyrstu reykskynjarnir sem koma til landsins í umbúðum sem áletraðar eru á íslensku.

Ykkur til upplýsingar og fróðleiks þá setjum við myndir af umbúðunum og leiðbeiningarnar hér fyrir neðan.


Jónískur skynjari
Jónískur reykskynjari
Þráðlaus sendir
RF þráðlaus sendibúnaður
Optískur skynjari
Optískur reykskynjari


Mynd af kassa fyrir jónískan reykskynjara Mynd af kassa fyrir RF þráðlausan sendibúnað
Mynd af kassa fyrir optískan reykskynjara

Leiðbeiningar fyrir jónískan reykskynjara Leiðbeiningar fyrir RF þráðlausan sendibúnað Leiðbeiningar fyrir optískan reykskynjara