Útsala á lítið notuðum Holmatro björgunarbúnaði núna

Okkur var að berast frá Holmatro listi yfir ýmis björgunartæki, dælur, lyftipúða og stuðningsbúnað sem boðinn er á lægra verði þar sem hann er lítilsháttar notaður eða jafnvel ekkert notaður.
Aðeins er um eitt eintak af hverju um sig, svo það verður að bregðast fljótt við. Við höfum reiknað út verð án VSK, en ekki gefið okkur tíma til að snúa úr ensku lýsingu á ástandi hvers búnaðar. Það er auðlesið og við auðvita til aðstoðar, ef þörf er á. Eins og áður sagði, er búnaðurinn lítið notaður eða alls ekki. Hefur hugsanlega verið notaður til sýningar o.þ.h. Allur búnaður er yfirfarinn áður en hann er sendur.

Þetta er því afar einfalt. Það þarf að hella sér út í lestur og skoða hvort eitthvað leynist, sem hægt er að komast yfir fyrir minni pening en nýtt. Hér er svo listinn, en hann er upp á 11 síður. Bregðist nú skjótt við ef þið hafið áhuga.


Frekari upplýsingar veitum við eða á heimasíðu okkar eða heimasíðu Holmatro.





.....Slökkvitæki, slökkvitækjaþjónusta, reykskynjarar, eldvarnateppi, brunaslönguhjól, gaskynjarar, kolsýrlingsskynjarar, fellistigar, keðjustigar, lyfjaskápar, neyðarljós, neyðarmerki.....