Við höfum bætt við upplýsingum á síðuna okkar

Við höfum bætt við upplýsingum á síðuna okkar en heimsóknir hafa verið talsverðar og við finnum á viðskiptavinum okkar að þetta er að koma sér vel.


Efst á síðunni núna er kominn vörulisti (norskur) en í honum eru flýtihnappar og á hann að auðvelda viðskiptavinum aðgengi að upplýsingum um þau sprengiefni og fylgihluti sem við getum boðið.

Eins höfum við sett inn sænskan bæklingu um notkun á Nonel kveikjum en fyrir var bæklingur á ensku. 

Tvær kynningarmyndir eru einnig komnar inn sem sýna notkun á Nonel kveikjum og eins Nonel LP kveikjum í jarðgangnagerð. Það er trú okkar að innan tveggja ára muni  notkun á rafmagnshvellhettum dragast verulega saman. 

Í dag er notkun eða sala okkar á rafmagnshvellhettum langt innan við 1/20 af sölu á Nonel kveikjum. Það segir sína sögu.

Hér má líka sjá myndirnar



Kynningarmynd
Nonel Unidet kveikjur

 

Kynningarmynd
Nonel LP kveikjur