Að gefnu tilefni viljum við ítreka ósk okkar um að viðhald

Að gefnu tilefni viljum við ítreka ósk okkar um að viðhald og eftirlit þeirra slökkvibifreiða sem þið eigið sé í samræmi við meðfylgjandi töflu sem er um leið ágæt efitirlitstafla fyrir hvaða gerð af slökkvibifreið sem er. 

Við höfum sent á alla eigendur Rosenbauer slökkvibifreiða áminningu um að kíkja í vatnstankinn og skoða eins og óskað er eftir í viðhalds og eftirlitstöflu sem á að vera í þjónustubókum yfir bifreiðarnar.
 
Eins og áður sagði hentar þessi tafla hentar öllum til að fylgjast með og viðhalda slökkvibifreið eins og þörf er á. 

Þar kemur m.a. fram að og skoðunar er þörf einu sinni á ári á vatnstank og froðutank.

Með tíð og tíma getur safnast í tankinn aðskotahlutir sem síðan geta farið í dæluna. Eins hefur komið fyrir að slökkviufroða haf farið inn á vatnstank og spurning hvernig að skolun og hreinsun hefur verið staðið. 

Í nokkrum gerðum af stáltönkum eru anóður sem eyðast og skal skipta út ef 30% er eftir. 

Eins geta skilrúm losnað og festingar þar með. Ef skilrúm eru illa farin er ástæða til að setja anóður þar til að draga úr tæringu.

Góður slökkviliðsmaður sendi okkur myndir úr hans tanki og eins og sjá má eru skilrúmin illa farin af oxideringu. Þrífa þarf þetta vel og setja anóður á skilrúmin.

 



IMG_2767.jpg (599467 bytes)
Allt í hvítum flekkjum.


IMG_2768.jpg (649059 bytes)

Sama hér og hér sjáum við festingu við tankvegg.


IMG_2769.jpg (581901 bytes)

Og sama hér.


IMG_2770.jpg (634946 bytes)

Álvinklarnir sleppa ekki.

 


IMG_2771.jpg (821650 bytes)

Eins og sjá má geta verið alls konar "aðskotahlutir" í tönkunum.


Kærar þakkir Viðar þorleifsson fyrir þessar ágætu myndir sem skýra mjög vel í hvernig ásigkomulagi vatnstankarnir geta verið.



Hér er fréttabréf frá framleiðanda.