Í byrjun mánaðarins fluttum við inn fyrir Brunamálastofnun og fleiri stofnarnir Bambi Bucket en það er sérgerð vatnsfata sem rúmar tæpa
2000 l. af vatni og notuð til slökkvistarfa með þyrlum.
Í apríl mánuði kom brunamálastjóri til okkar og leitaði aðstoðar við innflutning á þessum búnaði og var orðið
við óskum hans að sjálfsögðu. Það var framlag okkar til að þetta gæti orðið að veruleika en takmarkað fjármagn var til
staðar til að kaupa búnaðinn en með samstilltu átaki nokkurra stofnana sem nefndar eru í frétt á Mbl.is varð þetta að veruleika.
Ákveðið hafði verið hvaða gerð yrði tekin og stærð en þessi gerð er víst sú algengasta og er m.a. hér í
nágrannalöndum okkar.
Sú gerð sem til greina kom og þyrlur Landhelgisgæslunnar ráða við er BBT4453 með svokölluðum Torrentula Valve loka.
Búnaðurinn er 1960 l. vatnsfata ásamt sleppi og áfyllingarbúnaði en þyrla þarf ekki að lenda til að fylla fötuna af vatni eða
einhverju öðru slökkviefni.
M.a. getur þyrlan fyllt fötuna úr vatnslaugum eins og t.d.
Fol-da-tank laugum og
Trellpool laugum sem þó nokkur slökkvilið eru komin með. Þyngd
búnaðarins Bambi Bucket BBT4453 er aðeins 98 kg. og fyrirferð alls ekki mikil eins og sjá má á mynd sem tekin var áður en vatnsfatan fór
frá okkur.
Bambi Bucket fæst í ýmsum stærðum allt frá 270 l. og upp í 9.840 l. fötur. Venjulegar gerðir eru með sleppibúnaði þar sem
hífing frá þyrlu kemur við sögu en þessi "Torrentula Valve" loki eykur notkunarmöguleikana þar sem hægt er bæði að sleppa og fylla
á með honum ásamt því að hægt er að sleppa í smáskömmtum. Eins er takmarkalaus stilling á sleppingu, lítil fyrirferð
eftir losun, lokinn tæmir algjörlega, hraðari áfylling, opnast eða lokast á sekúndubroti og frábær hönnun lokans dregur verulega
úr áhrifum þyngdarafls á virkni lokans. Hér er bæklingur um
Bambi
Bucket og
Torrentula Valve þar sem frekari upplýsingar koma fram.
Á Mbl.is var svo frétt um að Landhelgisgæslan hefði fengið búnaðinn afhentan.