BB-CBC Greinistykki ????

Undanfarin ár hafa nokkur slökkvilið fengið frá okkur BB-CBC greinistykki til að geta lagt burðarlagnir með tveimur 2 1/2" eða 3" til tryggingar eða fyrir meiri vatnsflutning. BB-CBC Greinistykki


Hér má sjá BB-CBC greinistykki með tveimur 3" inngöngum og svo 3" út og tvö 2" úttök. Þessi greinistykki eru með hraðlokum en það eru til framleiðendur sem bjóða þessa gerð með skrúfuðum lokum. Með þessu greinistykki er hægt að greina áfram burðarglögn.


B-CBC greinistykki




Venjulega greinistykkið þ.e. B-CBC þ.e. aðeins einn inngangur með 3" og sama út er algengasta gerðin og fylgir þýskum staði með útlit og notkun. Þá gerð má einnig fá með skrúfuðum lokum. Með þessu greinistykki er hægt að greina áfram burðarglögn.

B-CC greinistykki með hraðlokum




Nokkuð algengt greinistykki er B-CC eða 3" í tvær 2". Þetta greinistykki er líka hægt að fá með skrúfuðum lokum. Ókosturinn við þetta greinistykki er að ekki er hægt að greina áfram burðarlögn í gegnum það en það á auðvita rétt á sér þar sem ekki er verið að krefjast þess.





Við erum yfirleitt með B-CBC greinistykki með hraðlokum og skrúfuðum lokum á lager. Vegna aukinnar eftirspurnar munum við nú verða með BB-CBC greinistykki á lager.

Hér eru frekari upplýsinar um úrval greinistykkja. Og hér einnig.