Breytingar á starfsmannahaldi.

Í byrjun september hætti Ágúst Benediktsson störfum en hann hafði starfað hér í ein 19 ár. Honum voru þökkuð góð störf og óskað alls hins besta á nýjum vettvangi. Ráðinn hefuir verið Kristján Ottó Hreiðarsson sem kemur til okkar frá Húsasmiðjunni. Eins hefur verið ráðinn Björn Bjarnason en hann kemur til okkar frá þjónustumiðstöð Garðabæjar. Báðir eru þeir dreifbýlismenn en hér hjá fyrirtækinu eru í meirihluta dreifbýlis fólk. Hér hefur annríki verið mikið í sumar og er nú einnig á haustmánuðum. Við biðjum ykkur viðskiptavinir að sýna okkur þolinmæði meðan við komum nýjum mönnum inn í störfin. Við erum þrír þessa dagana að sækja ADR námskeið hjá Vinnueftirlitinu svo að þeim loknum eiga allir sem sinna sprengiefnasölu að geta flutt sprengiefni.

Benedikt Einar Gunnarsson.