Eigum á lager brunaslönguskápa úr trefjaplasti um borð í skip og báta. Algengasta stærðin fyrir brunaslöngur 1 1/2" eða 2" 15 til 20 m. Eigum einnig Mandals brunaslöngur, Unifire úðastúta, storz tengi, tengjalykla og axir.
BIOBE BRUNASLÖNGUSKÁPAR FYRIR SKIP OG BÁTA
BRUNASLÖNGUSKÁPAR FYRIR SKIP OG BÁTA
Úr trefjaplasti (GRP) með ryðfríum hjörum og læsingu. Skáparnir eru með ól til að festa búnað. Stærð er 50 x 40 x 16 sm. Koma má auðveldlega fyrir brunaslöngu hvort sem er 15 m. af 1 1/2" eða 2" gúmmí (með ofnu millilagi) brunaslöngu eða ofinni hvítri brunaslöngu gúmmíhúðaðri. Brunaslöngurnar eru með Storz tengi sem eru vírofin á enda. Bæði er hægt að velja um seltuvarin tengi og venjuleg áltengi. Úðastútur 2" með Storz tengi seltuvörðu eða ekki. Uðastútarnir eru úr krómi. 2 stk. lyklar á B/C tengi eru nauðsynlegir svo snúa megi saman slöngu , krana og stút. Lítil brunaexi til viðbótar.
BIOBE |
Gerð slöngu og lengd |
Úðastútar og tengi |
Brunaslönguskápur |
Guardman 1 1/2" brunaslöngu 15m. m/Storz tengjum |
Unifire 2" Úðastútur m/Storz tengi og 2 stk Storz lyklar |
Brunaslönguskápur |
Guardman 2" brunaslöngu 20m. m/Storz tengjum |
Unifire 2" Úðastútur m/Storz tengi og 2 stk Storz lyklar |
Brunaslönguskápur |
Getex 1 1/2" brunaslöngu 15m. m/Storz tengjum |
Unifire 2" Úðastútur m/Storz tengi og 2 stk Storz lyklar |
Brunaslönguskápur |
Getex 2" brunaslöngu 20m. m/Storz tengjum |
Unifire 2" Úðastútur m/Storz tengi og 2 stk Storz lyklar |
Við erum líka komin með ýmsar aðrar gerðir af slöngum í skápana. Sjá úrvalið.
Ef þið hafið áhuga á að panta eða frekari upplýsingum sendið þá fyrirspurn á oger@oger.is eða hringið í síma 5684800.