Brunavarnir Árnessýslu fá Tohatsu dælu

Brunavarnir Árnessýslu hafa fengið Tohastsu dælu en þó nokkur slökkvilið eru með þessa gerð af lausum dælum enda öflugar og tiltölulega léttar dælur. Þetta er langvinsælasta dælan sem við bjóðum.

Brunavarnir Árnessýslu hafa fengið Tohastsu dælu en þó nokkur slökkvilið eru með þessa gerð af lausum dælum enda öflugar og tiltölulega léttar dælur. Þetta er langvinsælasta dælan sem við bjóðum.

Dælan er búin bæði raf og handstarti. Snúningssogdæla er aðeins 5,5 sek. að sjúga úr 3ja m. hæð um 6m. langan 4" barka. Dælan er vatnskæld um soghlið og er með sjálfvirka yfirhitavörn.

Úttök eru tvö 2 1/2" snúanleg og með lokum. Inntak er 3 1/2" með 4" Storz tengi. Afköst eru miðað við 3ja m. soghæð eins og áður sagði 2.050 l./mín við 6 bar, 1.800 l./mín við 8 bar og 1.500 l./mín við 10 bar. Sem sagt geysiöflug dæla. einstaklega auðveld í notkun og í trefjaplasthúsi. Með fylgir ljóskastari.

Orkuveita Reykjavíkur Nesjavallavirkjun, Slökkvilið Ísafjarðarbæjar, Brunavarnir Stykkishólms og nágrennis, Slökkvilið Fjallabyggðar, Orkuveita Reykjavíkur Hellisheiðarvirkjun, Slökkvilið Súðavíkur, Vertakafyrirtækið Arnarfell, Slökkvilið Langanesbyggðar, Slökkvilið Grenivíkur, Slökkvilið Borgarbyggðar, Slökkvilið Fjallabyggðar, Slökkvilið Bolungarvíkur, Slökkvilið Þingeyjarsveitar og Slökkvilið Hornafjarðar. Fleiri slökkvilið erum með Tohatsu dælur eins og m.a. Slökkvilið Akureyrar, Fjarðabyggðar og Ölfuss.

Við flytjum dælurnar beint frá Japan og yfirleitt er afgreiðslutími ekki nema um hálfur mánuður. Varahlutaþjónusta hjá Tohatsu er frábær annað er ekki hægt að segja. Einstaklega stuttur afgreiðslufrestur. Klikkið á dælumyndina og fáið allar upplýsingar um allar gerðir af Tohatsu dælum.

Tohatsu VC82ASE brunadæla sú öflugasta
.....Slökkvitæki, slökkvitækjaþjónusta, reykskynjarar, eldvarnateppi, brunaslönguhjól, gaskynjarar, kolsýrlingsskynjarar, fellistigar, keðjustigar, lyfjaskápar, neyðarljós, neyðarmerki.....