Brunavarnir Suðurnesja fá Holmatro búnað

Brunavarnir Suðurnesja fengu á dögunum Holmatro Spider dælu, glennur og tjakk inn í sett hjá sér. Glennur og tjakkur eru af 4000 gerðinni en dælan af Spider gerð.


Allur búnaður er af Core gerðinni og NTC (New Car technology). Í 4000 gerðinni er hröðunarloki sem flýtir lokun og opnun þegar ekki er álag á tækjunum um 65%. Í handföng eru tvö öflug díóðuljós sem lýsa við vinnu. Svo kallaður "I bolti" er í nýju gerðunum af klippum, en hann er fyrirferðaminni og herðir eingöngu saman hnífana en ekki tjakkarmana.

Holmatro SP4280C Glennur
Glennur eru af SP4280C gerð þær öflugustu en þær opnast um 677mm með 40,5 tonna afli við brún en togaflið 14,1 tonna afli. Lokunaraflið er 18,1 tonn. Vegur aðeins 26,9 kg.

Holmatro TR4350C Tjakkur
Tjakkur er af TR4350C gerð en opnunarafl hans á fyrsta strokk er 22,1 tonn en á öðrum strokk 8,3 tonn. Sá fyrsti fer út um 388mm, en sá seinni 354mm svo heildarlengd er 742mm. Heildarlengdin á tjakk og strokkum er 1275mm og í upphafsstöðu er hann 533mm. Vegur aðeins 17,4 kg.

Holmatro SR10 vökvadæla
Dælan er af SR10 gerð úr Spider fjölskyldunni. Þriggja þrepa dæla. Fyrir eitt tæki í notkun og er með fjórgengis Honduvél 2.1 hestafla vél með eldsneyti til 3ja klst. Þyngd er 14.5 kg. Stærðin er 360x290x423mm. Hljóð 82 dB í 1s. m. fjarlægð. Olíumagn 2840cc.

Með þriggja þrepa dælum eykst hraði og öryggi við klippivinnu.

.....Slökkvitæki, slökkvitækjaþjónusta, reykskynjarar, eldvarnateppi, brunaslönguhjól, gaskynjarar, kolsýrlingsskynjarar, fellistigar, keðjustigar, lyfjaskápar, neyðarljós, neyðarmerki, öryggiskerfi, innbrotaviðvörunarkerfi.....

 

.