Bylting í nýjum björgunartækjum frá Holmatro

Bylting í nýjum björgunartækjum frá Holmatro og uppfærsla á eldri gerðum. Undanfarið hafa nokkur slökkvilið umhverfis höfuðborgarsvæðið tekið sig til og bæði endurnýjað Holmatro björgunartæki sín og eins undirbúið eða þegar breytt eldri gerðum yfir í Core einnar slöngu kerfið. 

Fyrstir riðu á vaðið Slökkvilið Akraness en þeir endurnýja allan búnað sinn og fá um leið öflugustu klippur landsins. Búnaðurinn hjá SA var af svonefndri 2000 línu sem ekki er hægt að breyta og m.a. þess vegna var farin þessi leið. Þeir verða því vel í stakk búnir með nýjan og mun öflugri búnað á næstunni. 

Slökkvilið Hveragerðis hefur breytt hluta síns búnaðar en einni dælu var ekki hægt að breyta svo þeir fá nýja PPU15 C dælu og nýjar klippur af sömu gerð og Akurnesingarnir eða C4050 C NTC II með 94,5 tonna klippiafli. 

Annað lið í suðri þ.e. Brunavarnir Suðurnesja er að ganga frá uppfærslu á sínum búnaði og ætla þeir að hafa þann háttinn á að þetta verkefni gangi yfir á tveimur árum. Um slíkt er hægt að semja. Nokkrir aðrir eru að spá og spekúlera en það er því miður staðreynd að á all nokkrum stöðum eru björgunartækin ekki nógu öflug til að fást við nýjar gerðir bifreiða.

Vegna hins mikla áhuga sem er þessa stundina erum við að vinna að endurgerð á heimasíðu okkar um björgunartæki en allar upplýsingar er hægt að sækja inn á heimasíðu Holmatro og svo er góð lesning um einnar slöngu kerfið á síðunni Core.

Ef þið viljið frekari upplýsingar lesið þá það sem er hér fyrir neðan. Hafið svo samband og leitið tilboða.

 

Bylting í nýjum björgunartækjum frá Holmatro.

 Uppfærsla á eldri gerðum. 

Enn á ný er Holmatro fyrstir framleiðanda til að koma með nýjungar í framleiðslu á björgunartækjum. Ekki eina, heldur margar. Þessar nýjungar kynnti Holmatro á Rauða Hananum í vor, þar sem þeir voru með stóran og glæsilegan bás. En það má eiginlega segja að hann hafi samt ekki verið nógu stór, því þar var alltaf troðfullt af fólki að kynna sér það nýjasta í björgunartækjum. Enda Holmatro brautryðjandi á því sviði. 

Nýja  línan af tækjum sem kynnt var heitir Gerð 4000 og helstu breytingar frá fyrri gerð eru:  

          Nýr miðjubolti í klippum,
           
Handfang með ljósum,
            Innbyggður hröðunarloki,
            Meira afl en minni þyngd,
            CORE einnar slöngu tækni.
 

CORE er nafnið á nýja einnar slöngu kerfinu frá Holmatro, en það er alger bylting í allri vinnu og öryggi við notkun á björgunartækjum. Og ein merkasta nýjungin frá því farið var að framleiða vökvaknúin tæki. CORE tæknin byggir á að í stað hefðbundinna slanga þar sem önnur var notuð fyrir þrýsting að tæki og hin frá, er komin ein slanga.  Slanga þar sem þrýstislanga er inní annarri sem nýtist fyrir vökva frá tæki til dælu. Í stað 4 tengja á hefðbundinni slöngu eru bara 2 tengi á CORE. Innri slangan sem er þrýstislanga er úr kevlar efni og þolir 4 x vinnuþrýsting er því í raun varin af ytri slöngunni, en þar getur mest byggst upp 25 bar þrýstingur. Þetta er því í raun mun öruggara kerfi, því á hefðbundnar slöngur getur komið gat. Lítið nálargat getur orðið til þess að vökvi getur sprautast með 720 kg þrýstingi í hendi eða handlegg björgunarmanns. Slíkt hefur gerst með hörmulegum afleiðingum. Tengin í CORE kerfinu eru meira en bara tengi, því þau virka líka sem framhjáhlaupslokar, þannig að vökvinn er sífellt á hringrás frá dælu um slönguna ef tæki er ekki tengt. Um leið og tæki er tengt lokast fyrir hringrásina og vökvaaflið er strax komið í tækið. CORE slangan er 40% léttari en hefðbundin og vegna þess hversu auðvelt er að tengja hana og einnig að einungis þarf að tengja 2 tengi í stað 4 áður verður mun fljótvirkara og auðveldara að tengja og gera “klárt”. Tímasparnaður er ca 50%  Snúningsliður er á báðum endum slöngunnar og því nóg að toga í hana til að taka snúning af henni. Að auki þá fer minna fyrir tækjum, því ekki eru slönguendar sem taka pláss í skápnum.  

Góðu fréttirnar eru, að það er hægt að breyta eldri tækjum fyrir CORE kerfi en þó ekki öllum. Þá er settur nýr endi á handfang, gömlu slöngurnar teknar af og CORE tengi komið fyrir í staðin. Tekur ca 5 mínútur að skipta. 

Hérlendis eru það tæki líklega fyrir 1996 sem ekki er hægt að breyta en það eru tæki sem eru úr 2000 seríunni. Það skal líka litið til þess að þessi tæki eru um leið orðin úrelt til að eiga við ökutæki af nýrri gerðum þar sem styrkur í póstum hefur verið aukinn. Til fróðleiks þá klippir 2000 klippur með 29 tonna afli en nýjar klippur úr 4000 línunni með 94,5 tonna afli. Lesið frekar um 4000 línuna hér að neðan.

Hér hafa verið taldir upp helstu kostir kerfisins. Gallinn er…að ef skipt er yfir í CORE þarf að henda gömlu slöngunum. 

Við erum með tilboð á breytistykkjum og slöngum, bæði fyrir tæki og dælur. 

Speed valve (hröðunarloki) er nýjung í 4000 gerðinni. Hann er innbyggður í tækin og flýtir lokun og opnun þegar ekki er álag á tækinu um 65%. Ekki er hægt að setja þennan loka í eldri tæki. 

Handfang með innbyggðum ljósum, Hver kannast ekki við að vera í lítt eða illa upplýstri aðstöðu við klippivinnu ?  Ekki lengur, því nú hefur Holmatro komið með lausnina á því. Því innbyggð ljós eru í handfangi á 4000 gerðunum. Tvö sterk díóðuljós sem beinast að vinnusvæðinu eru innbyggð í handfang tækjanna. AA rafhlaða er einnig innbyggð og endist í ca. 6 tíma. Handfang með ljósum er hægt að setja á eldri tæki.

 

I Bolt er enn ein nýjungin frá Holmatro. Búið er að endurhanna miðjuboltann í klippunum og koma fyrir mun þynnri og fyrirferðarminni bolta. Þessi nýja gerð herðir eingöngu saman klippukjaftana en ekki tjakkarmana líka. Þetta minnkar slit og þvingun í blöðum og auðvitað nýtir afl tækisins allt í klippugetuna en ekki í innbyrðis þvingun. Annar plús, er að klippurnar komast mun betur að við þröngar aðstæður. I Bolt er einungis í 4000 gerðum af klippum.

 

Einnig er í 4000 gerðum af klippum ný hönnun á blöðum, svokölluð NCTII blöð. Þau eru sérstaklega hönnuð til að klippa pósta eins og eru í nýjum gerðum af bílum. Það er þykka marglaga, gerðum úr styrktum málmi. En eins og allir vita eru gerðar meiri og meiri kröfur um styrkleika bíla. Sem aftur gerir björgunarmönnum óleik, því eldri tæki vinna hreinlega ekki á þessum nýju styrktu bílum né á stærri bílum. Holmatro er í nánu samstarfi með bílaframleiðendum og stöðugt er unnið að þróun björgunar- tækjanna og helst það í hendur við þróun og breytingar í bílaiðnaðinum. Því miður passa nýju blöðin ekki í eldri gerðir, því slaglengd í tjakk er ekki sú sama.

 

Hafið í huga, að það er mikilvægt að gera sér grein fyrir að eldri tæki voru hönnuð fyrir klippi vinnu á þeim tíma. Í dag eru mun sterkari og harðari efni notuð í bílaiðnaðinum og tækin því ekki nægilega aflmikil. Það er nauðsynlegt að yfirfara blöð í klippum og skipta ef sér á þeim. Eins þarf að yfirfara slöngur vel. Notkunartími á slöngum ætti ekki að fara mikið yfir 12 ár. Huga að endurnýjun tækja í samræmi við aflþörf í dag.

 

4000 gerðin af björgunartækjum sem Holmatro kynnti á Rauða hananum er með öllum þessum nýjungum sem hér hefur verið lýst, og að auki eru tækin örlítið léttari en um leið aflmeiri. Ný dæla var einnig kynnt. DBU 31 PC Hún er aðeins 25 kg.  Og mjög hljóðlát 68 decibel. Hægt er að nota 23 tæki samtímis. Einföld í notkun, með sjálfvirkan gangráð. Allir hitafletir einangraðir, með ljósum sem lýsa á tengingar og fleiri nýjungum. 

 

Það er staðreynd, að bílaeign hefur aukist mikið, umferð hefur stóraukist. Af þeim sökum eru bílslys eðlilega fleiri. Dauðsföllum í bílslysum hefur fækkar. Og er það vegna sterkari bíla. En slösuðum fjölgar. Sem segir okkur að það er meira af slösuðu fólki innilokað í sterkum bílum og þar af leiðandi meira fyrir björgunarmenn að gera. Og þetta er þróun sem heldur áfram. Þetta kallar líka á þjálfaðri björgunarmenn með búnað sem stenst kröfur nútímans.

 

Eins og áður sagði verðum við með tilboðsverð á breytingum á Holmatro tækjum yfir í CORE kerfið og hvetjum menn til að hafa samband við okkur ef áhugi er á að breyta yfir í þetta byltingarkennda slöngukerfi. 

Frekari upplýsingar um nýjungar frá Holmatro