Arnarfell fær Tohatsu dælu í Ufsárveitur

Fleiri velja afkastamiklar, einfaldar, öruggar  og ódýrar Tohatsu slökkvdælur.  Arnarfell fékk í siðustu viku Tohatsu VC72AS brunadælu sem afkastar 1.300 l/mín við 8 bar og 3m. soghæð um 6m. barka. Einstök í sinni röð og þyngd hennar er aðeins 85 kg. Fyrir stuttu fengu Slökkvilið Langanesbyggðar, Slökkvilið Grenivíkur og Slökkvilið Borgarbyggðar Tohatsu dælur.


Dælan er búin bæði raf og handstarti. Snúningssogdæla er aðeins 6 sek. að sjúga úr 3ja m. hæð um 6m. langan 4" barka. Dælan er vatnskæld um soghlið og er með sjálfvirka yfirhitavörn.

Dælan í kassanum áður en hún fór héðan
Úttak er eitt 2 1/2" snúanlegt og með lokum. Inntak er 3 1/2" með 4" Storz tengi. Afköst eru miðað við 3ja m. soghæð eins og áður sagði 1.300 l./mín við 8 bar, 950 l./mín við 10 bar og 1.700 l./mín við 4 bar. Sem sagt geysiöflug dæla. einstaklega auðveld í notkun og í trefjaplasthúsi. Með fylgir ljóskastari.

Þessi dæla er hugsuð fyrir vinnubúðirnar í Ufsárveitum þar sem hún verður tengd við vatnsforðabúr.



Klikkið á myndina og fáið frekari upplýsingar um Tohatsu lausar brunadælur.