CCS-Cobra slökkvitæknin

Wawrzaszek hefur sett margs konar slökkvibúnað í þær slökkvibifreiðar sem þeir smíða m.a. CCS-Cobra búnaðinn.

CCS-Cobra búnaðurinn er vel þekktur en nokkuð langan tíma hefur tekið að koma honum á markað en segja verður að nú og jafnvel talsvert fyrr hafi hann verið tilbúinn. Eflaust hefur fjárskortur komið í veg fyrir útbreiðslu.

En það þarf ekki merkilegar eða stórar bifreiðar í að bera slíkan búnað og við látum hér til gamans myndir af VW Crafter sem þeir útbjuggu með CCS Cobra búnað.

CCS-Cobra búnaður er góð viðbót við hefðbundinn slökkvibúnað venjulegrar slökkvibifreiðar þar sem tveggja þrepa dæla há og lágþrýst er aðal slökkvibúnaðurinn. Til eru fleiri viðbótarkerfi eins og Rosenbauer Ultra, Darley OdinFoam, Oertzen, ofl. ofl.