Eigum eina Niagara 2 flotdælu á lager eftir


Nokkur eftirspurn hefur verið eftir flotdælum en við höfum flutt þær inn frá nokkrum framleiðendum. Fyrstu dælurnar tókum við frá Bandaríkjunum af Waterous gerð. Við erum nú að taka dælur frá Ogniochron sem okkur líst mjög vel á. Frá þessum sama aðila flytjum við inn slökkvitæki.

Eftirspurnin nú er í tengslum við þá kjarr og sinuelda sem við höfum fengið undanfarin ár.

Niagara 2 er önnur kynslóð frá þessum framleiðanda. Fleiri gerðir fást en þessi gerð er nettust og aflmest. Verðmunur milli gerða er tiltölulega lítill nema á minnstu gerðinni sem skilar um 750 l/mín. Þá gerð erum við ekki að þessu sinni að taka inn.

Hámarks afsköst eru 1200 l/mín og 410 l/mín við 2bar. Kastlengd um 30 m. Lágmarkssoghæð 30mm. Storz tengi B75.

Stærð er 775 x 410 x 625mm og þyngdin 29 kg.

Vélin er Honda GXV 160 4 kW. við 3600sn/mín. Eldsneytistankur tekur 1,8 l. og endist í 2 klst.

Myndband sem sýnir Niagra 2 gerðina og hér er bæklingur.

Við bjóðum fyrstu dælurnar á kynningaverði og er nú aðeins ein eftir á þessu verði.

Kynningaverð til slökkviliða kr. 220.926.- án VSK. Vnr. 374310
Verðlistaverð kr. 276.157.- án VSK. Veittur er 20% afsláttur.
Niagra 2 flotdæla

Ef þið hafið áhuga að panta eða frekari upplýsinga er þörf sendið fyrirspurn á oger@oger.is eða hringið í síma 5684800.