Einstaklega ódýr 5 kg. kolsýrutæki væntanleg

Undir lok mánaðarins munum við fá all verulegt magn af 5 kg. kolsýrutækjum sem við bjóðum á verði sem ekki hefur sést hérlendis áður. Slökkvitækin eru viðurkennd samkvæmt EN3 eins og öll þau tæki sem við bjóðum.  
Eins eru þau með svipaða eða sömu afkastagetu og önnur þau 5 kg. kolsýrutæki sem við bjóðum frá öðrum framleiðendum eða 89B slökkvieiningar.

5 kg. Nongbo kolsýrutækiTakist vel til við sölu og dreifingu á þessum tækjum munum við í ágúst bjóða 2 kg. kolsýrutæki á sambærilega hagstæðu verði.

Kolsýrutæki eru dýr slökkvitæki en með þessum tækjum verður breyting þar á.

Við tökum nú þegar við pöntunum á þessum tækjum og biðjum þá sem hafa áhuga að hafa samband sem fyrst. Verðið er einstakt og mun viðskiptavinir okkar njóta að fullu hagstæðra innkaupa okkar.

Við vekjum athygli þjónustuaðila og eins kolsýrutækjaeigenda á að all mikið er um gömul kolsýrutæki í umferð sem verið er að þrýstiprófa á 5 ára fresti með miklum tilkostnaði eða um kr. 5.552 hjá okkur en ný tæki þarf ekki að þrýstiprófa fyrr en að 15 árum liðnum og þá á 5 ára fresti. Fyrir utan það að erfiðara og erfiðara er að útvega varahluti í gömul tæki.


Við bjóðum einstakt verð á fyrstu 200 tækjunum eða  kr. 11.159 með VSK. Þau kolsýrutæki sem næst þessu verði koma hjá okkur eru á kr. 26.326 með VSK.

Um leið fáum við neyðarljós, keðjustiga og brunaslöngur á einstöku verði sem við munum kynna næstu daga.

Þau eru komin