Fol-Da Tank laugar til Brunavarna Árnessýslu

Brunavarnir Árnessýslu hafa fengið þrjár efna og vatnslaugar sem taka 9.500 l. en þær eiga að vera á Laugarvatni, í Reykholti og Árnesi. Þetta eru fyrstu laugarnar sem við seljum af þessari gerð en þær laugar sem við höfum hingað til selt hafa aðallega komið frá Trelleborg en þeir eru hættir framleiðslu á þeim. SSF-2500 Fol-Da-Tank laug í geymslupoka merkt B.Á.
Þessar laugar eru mjög meðfærilegar en þær eru grindarlausar og sjálfberandi. Þær eru gerðar fyrir mjög slæmar aðstæður. Kraginn er svokallaður flotkragi sem lyftist um leið og vatni er sett í laugina hvort sem það er beint úr vatnsbifreið eða dælt í hana.

Á lauginni neðarlega er svo úttak yfirleitt 4" með Storz tengi til að geta dregið vatn úr lauginni. Með lauginni er hægt að fá undirbreiðslu til að verja hana og eins yfirbreiðslu.

Þær eru úr sterku plastefni (PVC) sem er heitsoðið saman. Auðveldar viðgerðir ef þörf er á. Léttar og fyrirferðalitlar miðaða við stærð. Einn maður getur auðveldlega komið þeim fyrir. Fjögur handföng á laug en tvö á geymslupoka.
Undirbreiðslan er líka merkt
Laugarnar henta þar sem er vatnsskortur t.d. við slökkvistarf. Vatnsbifreið getur losað í laugina og lagt strax af stað eftir meira vatni. Eins henta þær sem geymsla á spilliefnum eða til blöndunar efna í miklu magni.

Hægt er að fá laugarnar merktar með stensilmerkingu eins og gert var á laugarnar fyrir Brunavarnir Árnessýslu.
Flott merking


Hjá Brunavörnum Árnessýslu hefur alltaf verið lögð mikil áhersla á að hafa nægjanlegt og vatn til slökkvistarfa og er það hugmyndin að laug fylgi þeim bifreiðum sem eru á þessum svæðum og þær geti þannig orðið vatnsflutningabifreiðar fyrir þá eða þær slökkvibifreiðar sem fara í dælingu. Þeir hjá B.Á. hafa mikla reynslu af vatnsskorti þó svo hafi ekki verið fyrir síðustu jól.

Hér má sjá ýmsar stærðir sem eru fáanlegar. Stuttur afgreiðslufrestur.

Heiti

Lítrar

Þyngd
 kg

Stærð

Samanbrotin stærð

*SSTFD-500

1900

23

0.8 x 1.5 x 2M

76 x 81cm

*SSTFD-1000

3800

27

0.8 x 2.2 x 2.7M

81 x 81cm

*SSTFD-1500

5600

34

0.8 x 2.8 x 3.6M

86 x 94cm

*SSTFD-2000

7500

34

0.8 x 3 x 3.8M

86 x 94cm

SSTFD-2500

9500

43

0.8 x 3.7 x 4M

91 x 94cm

SSTFD-3000

11300

48

0.8 x 4 x 4.5M

91 x 94cm

SSTFD-4000

15000

50

0.8 x 4.3 x 4.9M

96 x 106cm

SSTFD-5000

19000

59

0.8 x 5.2 x 5.8M

102 x 106cm