Föstudaginn 23. febrúar verður lokað vegna flutninga

Föstudaginn 23. febrúar verður lokað vegna flutninga. Ólafur Gíslason & Co hf.  flytur þá í annað húsnæði sem er ekki langt undan eða í Sundaborg 7 og verður opnað þar mánudaginn 26. febrúar.

Þegar ekið er inn á planið hér fyrir utan Sundaborgina er beygt til hægri í stað vinstri og blasir þá verslunin við.

Við biðjumst velvirðingar á þessum breytingum en við flytjum í stærra og hentugra húsnæði og það er ekki framkvæmanlegt nema loka þennan dag meðan lokaflutningar eiga sér stað.

Vinsamlegast hafið því samband sem fyrst ef það er eitthvað sem ykkur vanhagar um og hægt er að afgreiða fyrir föstudaginn.

Gera má einnig  ráð fyrir að sími verði lokaður föstudaginn 23. febrúar.

Við förum héðan


hingað eða um 4 húsnúmer


Framkvæmdir standa enn yfir en þetta á að gera sig