Frá MSA SOLARIS efnamælir

Við viljum vekja athygli ykkar á litlum og handhægum efnamæli sem mælir fyrir ykkur sprengigas, H2S, CO og O2. Þessi gerð hentar vel fyrir þau verkefni sem slökkviliðum ber að inna af hendi í sambandi við efnaslys. Mælirinn er vatnsvarinn samkvæmt IP65, notar lithium rafhlöðu endurhlaðanlega sem endist í yfir 14 klst. Hann vegur aðeins rúm 200 g. Gefur frá sér hljóðviðvörun yfir 100dB. Bjartur LED skjár. Sjá bækling. Það sem gerir þennan mælir áhugaverðan er fjöldi þeirra mismunandi efna sem hann getur ráðið við. Verð er mjög hagstætt og notkun einföld.

Við getum boðið mæla sem mæla aðeins eitt efni í einu en verð slíkrar mæla er tiltölulega hátt miðað við verðið á þessum. Þessi þarf að endurstillast reglulega eins og aðrir mælar og sjáum við um það.

 
Leitið upplýsinga