Framúrskarandi fyrirtæki 2010

Creditinfo hefur unnið að ítarlegri greiningu  sem sýnir hvaða íslensku fyrirtæki fá bestu einkunn í styrk- og stöðugleikamati félagsins.  Af rúmlega 32.000 fyrirtækjum sem skráð eru í Hlutafélagaskrá reyndust 177 fyrirtæki uppfylla þau skilyrði sem Creditinfo setur til að fá viðurkenningu sem  framúrskarandi fyrirtæki.
Vottun af þessu tagi þekkist víða erlendis en á stærri mörkuðum er algengara að skilyrði vottunar séu ekki eins ströng og ákveðið var að setja hér á landi. Að mati Creditinfo er mikilvægara á litlum markaði að draga fram styrkleika fyrirtækja sem birtist í stöðugleika í rekstri fremur en niðurstöðum einstakra rekstrarára. Slíkar kröfur eru líklegri til að undanskilja sveiflukenndan árangur stærri eignarhalds- og móðurfélaga en undirstrika frekar styrkleika fyrirtækja í virkri starfsemi sem standast ýmsar efnahagssveiflur, t.d. bankahrunið 2008.

Eftirfarandi upplýsingar eru lagðar til grundvallar á mati Creditinfo um hvort fyrirtæki uppfylli skilyrði styrkleikamatsins: 

  • Að hafa skilað ársreikningum til RSK fyrir rekstrarárin 2007 til 2009
  • Að vera í CIP áhættuflokkum 1-3 í  janúar 2011 (minna en 1% líkur á vanskilum)
  • Að sýna ≥ 0 kr. rekstrarhagnað (EBITD) þrjú ár í röð, 2007 - 2009
  • Að ársniðurstaða sé jákvæð þrjú ár í röð, 2007 – 2009
  • Eignir séu 100 milljónir kr. eða meira rekstrarárin 2007 – 2009
  • Að eigið fé sé 20% eða meira rekstrarárin 2007 – 2009
  • Að vera virkt fyrirtæki samkvæmt skilgreiningu Creditinfo



Við erum meðal þessara 177 fyrirtækja
(smellið á myndina)


.....Slökkvitæki, slökkvitækjaþjónusta, reykskynjarar, eldvarnateppi, brunaslönguhjól, gaskynjarar, kolsýrlingsskynjarar, fellistigar, keðjustigar, lyfjaskápar, neyðarljós, neyðarmerki.....