Creditinfo hefur unnið að ítarlegri greiningu sem sýnir hvaða íslensku fyrirtæki fá bestu einkunn í styrk- og stöðugleikamati félagsins. Við hlutum viðurkenningu 2010, 2011, 2012 og nú fyrir árið 2013.
Af 33 þúsund fyrirtækjum sem skráð eru í hlutafélagaskrá sýna 462 fyrirtæki, 1,4% af öllum fyrirtækjum í landinu, þann styrk í mælingum Creditinfo að verðskulda viðurkenninguna Framúrskarandi fyrirtæki.
Að mati Creditinfo er mikilvægara á litlum markaði að draga fram styrkleika fyrirtækja sem birtist í stöðugleika í rekstri fremur en niðurstöðum einstakra rekstrarára. Slíkar kröfur eru líklegri til að undanskilja sveiflukenndan árangur stærri eignarhalds- og móðurfélaga en undirstrika frekar styrkleika fyrirtækja í virkri starfsemi sem standast ýmsar efnahagssveiflur.
Eftirfarandi upplýsingar eru lagðar til grundvallar á mati Creditinfo um hvort fyrirtæki uppfylli skilyrði styrkleikamatsins:
-
að hafa skilað ársreikningum til RSK 2010 til 2012
-
minna en 0,5% líkur á alvarlegum vanskilum
-
að sýna jákvæðan rekstrarhagnað (EBIT) þrjú ár í röð
-
að ársniðurstaða sé jákvæð þrjú ár í röð
-
eignir séu 80 milljónir eða meira árin 2010 - 2012
-
að eigið fé sé 20% eða meira, rekstrarárin 2010 til 2012
-
að vera með skráðan framkvæmdastjóra í hlutafélagaskrá
-
að vera virkt fyrirtæki skv. skilgreiningu Creditinfo
Við erum meðal þessara 462 fyrirtækja
(smellið á myndina)
.