Eins og undanfarin ár hefur Creditinfo hefur unnið að ítarlegri greiningu sem sýnir hvaða íslensku fyrirtæki fá bestu einkunn í styrk- og stöðugleikamati félagsins. Við hlutum viðurkenningu 2010, 2011, 2012, 2013 og nú fyrir árið 2014. 5 ár í röð færir okkur gullmerki
Af 34 þúsundum fyrirtækjum sem skráð eru í hlutafélagaskrá sýna 577 fyrirtæki, 1,7% af öllum fyrirtækjum í landinu, þann styrk í mælingum Creditinfo að verðskulda viðurkenninguna Framúrskarandi fyrirtæki.
Að mati Creditinfo er mikilvægara á litlum markaði að draga fram styrkleika fyrirtækja sem birtist í stöðugleika í rekstri fremur en niðurstöðum einstakra rekstrarára. Slíkar kröfur eru líklegri til að undanskilja sveiflukenndan árangur stærri eignarhalds- og móðurfélaga en undirstrika frekar styrkleika fyrirtækja í virkri starfsemi sem standast ýmsar efnahagssveiflur.
Eftirfarandi upplýsingar eru lagðar til grundvallar á mati Creditinfo um hvort fyrirtæki uppfylli skilyrði styrkleikamatsins:
-
að hafa skilað ársreikningum til RSK síðastliðin 3 ár
-
minna en 0,5% líkur á alvarlegum vanskilum
-
að sýna jákvæðan rekstrarhagnað (EBIT) þrjú ár í röð
-
að ársniðurstaða sé jákvæð þrjú ár í röð
-
eignir séu 80 milljónir eða meira undanfarin 3 ár
-
að eigið fé sé 20% eða meira, rekstrarárin 2011 til 2013
-
að vera með skráðan framkvæmdastjóra í hlutafélagaskrá
-
að vera virkt fyrirtæki skv. skilgreiningu Creditinfo
Við erum meðal þessara 577 fyrirtækja og númer 267
(smellið á myndina)