Fyrr á árinu afhentum við fyrstu Holmatro björgunartækin í 5000 línunni til góðs viðskiptavinar. Við munum kynna 5000 línuna í næstu viku í Reykjavík, Akureyri og Reyðarfirði. Hafið samband og fáið nánari upplýsingar.
Ef allt gengur eftir verðum við hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins í Hafnarfirði á þriðjudaginn 10.5, SA á Akureyri á miðvikudag 11.5 og Slökkviliði Fjarðabyggðar á Reyðarfirði á fimmtudag 12.5.
Holmatro ber höfuð og herðar yfir aðra björgunartækjaframleiðendur. Nýja 5000 línan er bæði léttari og öflugri en 4000 línan.
Nú eru allir möguleikar fáanlegir, handdrifin tæki, vökvadrifin tæki, rafhlöðudrifnar dælur og vökvadrifin tæki og svo rafhlöðudrifin tæki.
Fyrir valinu hjá viðskiptavini okkar voru valin sambærileg tæki í 5000 línunni og þeir voru með fyrir en um leið eru þau eru bæði léttari og öflugri.
Hvetjum ykkur á meðan að nýja heimasíðan okkar er ekki tilbúin að fara inn á Holmatro vefsíðuna.
Hér er stuttur bæklingur yfir heildarlínuna.
Allur klippibúnaðurinn er af Core gerðinni og NCT (New Car technology). Í 5000 gerðinni er hröðunarloki sem flýtir lokun og opnun þegar ekki er álag á tækjunum um 65%. Í handföng eru sex öflug díóðuljós (voru tvö) sem lýsa við vinnu. Svo kallaður "I bolti" er í klippunum, en hann er fyrirferðaminni og herðir eingöngu saman hnífana en ekki tjakkarmana. Mun auðveldara aðgengi.
Klippurnar af CU5050i gerðinni voru valdar en þær eru algjör nýjung. Þær eru með hallandi blöðum sem auðveldar aðgengi að póstum og þaki. Mikið vinnuhagræði.
Ef frekari upplýsinga er þörf sendið fyrirspurn á oger@oger.is
|
Klippurnar eru af CU5050i gerð Þessi gerð er byltingagerð nýjung en blöðin hallast sem auðveldar aðgengi að póstum og þaki. Auðveldar alla klippivinnu. Klippir með 141,6 tonna afli og opnast í 180 mm. Þyngdin aðeins 16,2 kg.
Eldri gerðin CU4055 NCT klippir með 103,8 tonna afli, opnast í 202 mm og þyngdin er 19,6 kg. Verulega aukið afl í nýju klippunum eða um 39% og létting um 19% eða fimmtung.
|
Öflugustu glennurnar eru af gerðinni SP5280 en þær opnast um 662 mm með 47,2 tonna afli og klemma með 16,2 tonna afli. Þyngd aðeins 19,8 kg.
Eldri gerðin SP4280C opnast um 677 mm með 40,5 tonna afli og klemmir með 18,0 tonna afli. Þyngd 26,9 kg.
Opna með rúmlega 5% meira afli og er létting um 26% eða fjórðung.
|
|
|
Tjakkar eru að mestu leyti óbreyttir þ.e þessir sundurdraganlegu (telescopic) Gerðin sem valin var er TR4350C en opnunarafl hans á fyrsta strokk er 22,1 tonn en á öðrum strokk 8,3 tonn. Sá fyrsti fer út um 388mm, en sá seinni 354mm svo heildarlengd er 742mm. Heildarlengdin á tjakk og strokkum er 1275mm og í upphafsstöðu er hann 533mm. Þyngd aðeins 16,3 kg. Eldri gerðin er 17,4 kg. |
Holmatro CU4007C Klippur litlar og auðveldar að koma við þar sem rými er lítið, en þær klippa með 22.4 tonna afli. Þyngd er 3.8 kg. Stærð 377 x 72 x 131 mm. Blaðopnun 59 mm. Vinnuþrýstingur 720 bar. Fyrir Core slöngur. |
|
|
Dælurnar eru af SR10 gerð úr Spider fjölskyldunni. Þriggja þrepa dælur. Fyrir eitt tæki í notkun og eru minnstu dælurnar með fjórgengis Honduvél 2.1 hestafla með eldsneyti til 3ja klst. Þyngd er 14.5 kg. Stærðin er 360x290x423mm. Hljóð 82 dB í 1s. m. fjarlægð. Olíumagn 2840cc.
Með þriggja þrepa dælum eykst hraði og öryggi við klippivinnu.
Margar fleiri gerðir af dælum fáanlegar |
Með í settinu eru svo tvær 10 m. langar Core slöngur, A og B kubbasett, V-Strut stoðir og svo HRS22 NCT sílsaklossi.