Í fyrri viku fóru fyrstu Scott Propak reykköfunartækin til Brunavarna Stykkishólms og nágrennis.
Eftir skoðun og stutta umhugsun hjá liðsmönnum urðu Scott Propak reykköfunartækin fyrir valinu ásamt SabreCom fjarskiptabúnaði.
Tækin eru byggð upp af Scott og Sabre Contour og eru með léttustu og öruggustu reykköfunartækjum sem völ er á.
Hér getur þú skoðað frekari upplýsingar Þau eru
viðurkennd samkvæmt prEN137: 2002 class II, ásamt því að vera prófuð við sérstakar hita og loga prófun (incorporating the
stringent flame engulfment test). Viðurkennt lunga, tryggt loftflæði, 100% Kelvar vefnaður, fallhlífar sylgjur, ný gerð stillingarbands á loftkút og
auðveld endurnýjun.
Létt afrafmögnuð bakplata með Kelvar kútabandi (auðveld skipti á kútum) og stillanlegum fóðruðum ólum. Tvöfalt kerfi með
framhjáhlaupi, mælir og 55 bara flauta. Ýmsar tengingar á lofti. Bakplata stillanleg fyrir aðrar stærðir af kútum.
Tækin eru með 46 mín léttkútum og 300 bara þrýsting. Tækin eru eins og áður sagði vönduð með Kelvar tregbrennanlegum
ólum. Kútarnir eru léttkútar með 1.860 l. af lofti og vega aðeins 6,8 kg. fullhlaðnir. Þvermál 160 mm og 600 mm. langir.
Líftími minnst 15 ár. Scott Propak tækin eru með Vision 3 maska og sá maski eru um margt mjög einstakur þar sem glerið er mjög kúpt og
eykur útsýni miðað við aðrar venjulegar gerðir af möskum.
Nú bíður eitt slökkvilið eftir Scott Propak tækjunum sínum.