Gleðileg jól !


Nú þegar jólahátíðin nálgast langar okkur til að óska brunavörðum okkar öllum Gleðilegra jóla, árs og friðar og þökkum fyrir samstarfið á líðandi ári.

Eins og á hverju ári um all mörg ár langar okkur til að þakka þeim brunavörðum sem verja á hverju ári talsverðum tíma í sölu, kynningu og uppsetningu á eldvarnabúnaði fyrir heimilin í landinu. Þau eru ófá sveitarfélögin á landinum sem eiga brunaverði sem gefa af tíma sínum til að sinna forvörnum að óeigingirni, alúð og góðsemi við náungann. Margir hverjir hafa staðið í þessu um margra ára skeið og án efa er þetta þáttur í jólaundirbúningi margra fjölskyldna brunavarða. Þetta starf er unnið án auglýsinga og fáir vita að það er gert án endurgjalds annars en þess að vita að með starfi sínu þá eigi þeir von á að mannslíf bjargist og minni skaði verði á eignum.

Hafið þökk fyrir