Hækkað verð

Undanfarið hafa okkur borist tilkynningar frá birgjum um hækkað verð og eru ástæður fyrir hækkunum ýmsar. Til viðbótar þeim hækkunum þá eru bókstaflega allir sem selja okkur þjónustu að hækka sínar verðskrár eins og flutningsaðilar og aðrir þjónustuaðilar við verslunina.

Þeir gjaldmiðlar sem við kaupum mest inn í hækkuðu á síðasta ári frá 22% til 30%. Síðasta verðhækkun okkar var í fyrravor þegar gengið féll eins og við leyfum okkur að kalla það.

Við verðum að bregðast við og höfum undanfarið hækkað verð og er hækkunin mjög mismunandi eftir vörutegundum. Sumt hækkum við ekki. Verðhækkanir eru á bilinu frá 2% til 7%.

Það má allt eins búast við frekari verðhækkunum þar sem allmargir birgar okkar hafa tilkynnt um komandi verðhækkanir og ferð það saman að hráefni hefur hækkað talsvert undanfarið  og í sumum tilfellum tvöfaldast.

Við munum því hækka verð eftir því sem nýjar birgðir berast til okkar annað getum við ekki.