Heimsókn slökkvistjóra

Í dag fengum við heimsókn slökkvistjóra ásamt fulltrúum Brunamálastofnunar til okkar. Það er alltaf jafn ánægjulegt að fá tækifæri til að hitta viðskiptavini og eiga spjall saman.  
Því miður tókst ekki nógu vel til í myndatökum en hér eru tvær myndir sem við tókum. Einhver hafði átt við myndavélina og það bara má alls ekki.

Slökkvistjórarnir eru hér á ráðstefnu Brunamálastofnunar sem haldin er að þessu sinni á Grand Hótel.

Við fengnum aðstoð frá ágætum viðskiptavini okkar Brunavörnum Árnessýslu en þeir mættu til að sýna nýjustu slökkvibifreið sína en þeir hafa nýverið lokið við að koma fyrir búnaði sínum í hana. Gott að eiga góða að og kærar þakkir.

Og slökkvistjórar. Kærar þakkir fyrir komuna. Vonandi hefur heimsóknin verið ykkur ánægjuleg eins og hún var okkur.