Íslensk framleiðsla á reykköfunartöflum og statífum

Við leit okkar að reykköfunartöflu fyrir Slökkvilið Ísafjarðarbæjar þá leituðum við til Brunavarna Árnessýslu (BÁ) þar sem að þau voru einstaklega ánægð með sína lausn í þessu máli.

Þau hjá BÁ höfðu fengið Snorra Baldursson í verkið og eftir samræður við listasmiðinn þá var hann tilbúinn að gera slíkt hið sama fyrir okkur. Þar með getum við nú selt reykköfunartöflur á íslensku og statíf úr ryðfríu stáli undir þær. Fram til þessa hefur vantað íslenska framleiðslu á reykköfunartöflum og statífum fyrir þessar töflur. Það hefur meira að segja verið erfitt að finna þessa framleiðslu erlendis og kostnaðarsamt að breyta þeim yfir á íslensku.

Þið getið nú keypt þessar vörur hjá okkur á eftirfarandi verðum:
Reykköfunartafla = 55.000,- kr m/vsk
Statíf (ryðfrítt stál) = 44.000,- kr m/vsk

Reykköfunartafla Brunavarna Árnessýslu Statíf fyrir reykköfunartöflur