Við getum nú boðið frá
ISS - Wawrzaszek glæsilega og öfluga slökkvibifreið með öflugri há og
láþrýstri brunadælu á ótrúlega hagstæðu verði.
Þetta er bifreið sem hentar fyrir mörg
sveitar og bæjarfélög. Undirvagn getur verið frá 14 til 16 tonna og vélin 1050 Nm miðað við 1500 snúninga. Beinskiptur eða
sjálfskiptur.
Svona bifreið með 3.000 l. vatnstank er fullestuð þ.e. tilbúin í útkall 14 tonn og er þá um 20 hestöfl á tonnið sem er eins og
áður mjög gott. Þá er allt með talið mannskapur og allt. Hægt er auðvita að vera með minna af vatni ef svo er óskað.
Með tvöfalt áhafnarhús
fyrir allt að 6 manns jafnvel 7 manns þar af 4 í reykköfunarstólum. Skápar sjö í yfirbyggingu. Staðreyndin er sú að öll
sveitarfélög eiga að vera með slökkvibifreiðar með tvöföldu áhafnarhúsi svo hægt sé að fara í útkall með
þann mannskap sem sinna á því. Það eru ekki margir vinsælir í fjölskyldubílinn algallaðir með tilheyrandi lykt og sót. Eins
er húsið upphitað afdrep í slökkvistarfi. Nægt pláss fyrir brunaslöngur, úðastúta, öll nauðsynleg áhöld og
björgunartæki ef þau eiga að vera með.
Brunadælan er 3.000 l/mín við 8 bar og
150 l/mín við 40 bar. Háþrýstikefli geta verið eitt eða tvö. Stór hluti stýribúnaðar við dælu er loftstýrður.
Inntök 2 x 4" eða 1 x 5". Úttök geta verið 2 x 2 1/2" eða 4 x 2 1/2". Froðutankur 200 l. Fullkomið mælaborð. Dælan með kælingu um tank
og er ústeypt úr bronzi þ.e. fullkomlega seltuvarin sem er kostur fyrir þá sem sækja í sjó eða þurfa að dæla úr
bátum. Hægt að fylla á tank beint frá opnu. Gangráður á dælu svo skilja má bifreiðina eftir mannlausa ef þörf
krefur.
Á þaki
er stigi, barkar og jafnvel úðabyssa sem skilað getur 2.300 l/mín. Ljósamastur 2 x 1000W snúan og veltanlegt og nær 6 til 7 m. hæð. Í
skápum innréttingar. Miðstöðvar að öllum skápum og í áhafnarhúsi. Talstöð og nauðsynlegar tengingar fyrir síma.
Hleðslutæki fyrir rafgeyma. Rafstöð eða rafall við vél. Olíutankur er yfirleitt fluttur í grind til að auka pláss.
Vinnuljós umhverfis bifreiðina. Blá stróp ljós eða strópljósarenna. Strópljósin eru á hliðum, aftan og í grilli
að framan. Ástig í alla skápa.
Leitið upplýsinga um verð. Það kemur ykkur á óvart. Þessi bifreið leysir vanda margra sem þurfa hraðskreiða og öfluga slökkvi
og björgunarbifreið sem jafnt getur sinnt þeim sem nálægt búa eða þeim sem eru á endimörkum umsjónarsvæðis
slökkviliðsins.