Jólakveðjur til viðskiptavina

Við óskum ykkur og fjölskyldum ykkar gleðilegra jóla og friðsældar um hátíðina. Megi komandi ár veita öllum farsæld og gæfu.




Árið sem nú er að líða hefur reynst viðburðarríkt fyrir alla Íslendinga. Við erum þakklát fyrir þau samskipti  sem við höfum átt við alla okkar viðskiptavini á árinu, bæði nýja og gamla.

Þeir eru ófáir nýjir sem birst hafa og þeir gömlu eldast vel.

Það er von okkar að nýtt ár verði öllum gæfuríkt og við munum stefna ótrauð áfram.  Horfum djörf fram á veginn og munum leggja enn meiri áherslu á að veita góða þjónustu.