Kynning á
Peli ljósum og öðrum búnaði fyrir björgunarsveitir, slökkvilið og sjúkraflutningsaðila.Við bjóðum
nokkrar gerðir vandaðra ljósa og er meðfylgjandi bæklingur yfir helstu gerðir eins og Peli sem eru vatnsvarin ljós einstaklega vönduð. Notuð m.a. af
slökkviliðum (reykköfurum), köfurum, björgunarsveitum ofl.
Peli Products framleiða gífurlegt úrval ljósa í hæsta gæðaflokki. Flest allar gerðir eru vatnsheldar og hafa viðurkenningu sem
sprengifríar eða neistafríar samkvæmt ATEX II 3.
Þau ljós sem við höfum lagt áherslu á eru Xenon ljós en þeir framleiða einnig LED ljós. Þau eru mun dýrari allt að
tvöfalt dýrari, en þeir kynntu nú nýjung í gerð LED ljósa. LED ljós hafa verið punktljós og ekki dregið mjög langt
þ. e. með dreifðan geisla. Þeir hafa nú komið fyrir spegli sem endurkastar geislanum og nær hann þá lengra. Við munum verða með LED
ljós á lager ef eftirspurnin verður slík
Eins verður hægt að velja um LED eða Xenon í framtíðinni. Sérstök áhersla verður lögð á ennis og
höfuðljós en þau verða mjög athyglisverð með t.d. rofa sem stillir afköst 100, 50 eða 25%. Sumar gerðir bæði með LED perur og Xenon.
Heimasíða Peli Products er www.peliproducts.com
Við eigum mjög vandaðan bækling frá Peli þar sem fram koma frekari og nákvæmari upplýsingar um þær gerðir ljósa sem
þeir framleiða. Sé þess óskað mum við senda ykkur slíkan bækling.
Eins viljum við vekja athygli á Nite ljósum sem eru öflug leitarljós sem við höfum selt hérlendis um 12 ára skeið. Beintengd 12V eða
með hleðslurafhlöðum. Sjá heimasíðu okkar www.olafurgislason.is
Frá Panasonic bjóðum við ykkur þrjú ljós í pakka gúmmíklædd vatns og skvettuvarin með rafhlöðum á
frábæru verði. Golight ljóskastarar á bifreiðar fjarstýrð 12V 50W eða 100.000 cp. Eigum á lager tvær gerðir gerðir. Verð er
frá 27.440 m/VSK.
Einnig erum við með Holmatro björgunartæki sem eru til notkunar við björgun úr bílslysum, húsarústum
eða við hverskonar aðstæður þar sem bjarga þarf fólki eftir slys en Holmatro er einn stærsti framleiðandi björgunartækja í
heiminum í dag og er leiðandi á þessu sviði. Hér á landi hafa Holmatro björgunartæki verið í notkun í 25 ár. Holmatro
búnaður er í notkun á eftirfarandi stöðum, Reykjavík, Hafnarfirði, Akranesi, Borgarnesi, Ólafsvík, Stykkishólmi, Patreksfirði,
Ísafirði, Bolungarvík, Sauðárkróki, Siglufirði, Dalvík, Akureyri, Eskifirði, Kirkjubæjarklaustri, Vestmannaeyjum, Hvolsvelli, Selfossi,
Hveragerði, Keflavík, Keflavíkurflugvelli, Brunamálastofnun ríkisins, Almannavörnum ríkisins, Alcan í Straumsvík og svo í ýmsum
veggöngum eins og Hvalfjarðargöngum og Fáskrúðsfjarðargöngum. Á nokkrum stöðum er í notkun fleiri en eitt sett og eins er
stoðbúnaður Holmatro Powershore á nokkrum stöðum.
Holmatro stoðbúnaðurinn er til notkunar við rústabjörgun, til tryggingar í húsum og hýbýlum og við klippivinnu í
bílflökum. Búnaðurinn samanstendur af stillitjökkum (sjálfvirkum eða ekki, loftstýrðum eða vökvastýrðum), handdælu,
mismunandi framlengingum frá 125mm til 1500mm, millistykkjum og svo mismunandi endum þ.e. krossum, vinklum, kónískum, hvössum, stuðningsplötum,
snúningsendum margskonar og svo beltum til strekkingar. Heimasíða Holmatro er www.holmatro.com
Við erum einnig með stoðbúnað af annarri gerð mjög svo öflugan frá Cepco Tool Company. Við bjóðum við margs konar stoðir,
stuðningsfætur, tjakka, keðjur, bönd, króka og hausa til notkunar við að tryggja og skorða af t.d. bifreiðar eftir ákeyrslu eða
útafkeyrslu. Eins til að tryggja vinnu við önnur björgunarstörf, rústabjörgun eða þess háttar björgunarstörf. Heimasíða
þeirra er www.res-q-jack.com
Frá Pacific Emergency Products í Kanada höfum við boðið töskur og poka fyrir sjúkralið, björgunarsveitir,
slökkvilið og neyðarsveitir. Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins, Akureyrar, Skagafjarðar og sjúkralið á Norðaustur og Austurlandi
þekkja vel þessar töskur og poka. Heimasíða þeirra er www.pacsafety.com
Athygli er vakin á BurnRelief bruna eða kæligeli sem við erum með á lager í tveimur stærðum þ.e.
töskum með mimunandi umbúðum. Kælir, er óviðloðandi, slær á sársauka og stöðvar framvindu bruna.
Frá Bandaríkjunum bjóðum við ProLite bakbretti, hálskraga, ólar og eins svo nefnt SpeedBoard sem er notað til
þess að stífa efri hluta líkamans. Heimasíðan er www.prolitespineboards.com en þar er hægt að
sjá myndir og upplýsingar af ýmsum öðrum gerðum bretta sem þeir bjóða. ProLite bakbrettin eru í slökkvibifreiðum
Flugmálastjórnar, á flugvöllum, hjá björgunarsveitum og í sundlaugum um land allt. Þeir bjóða einnig minni bretti fyrir litla
fólkið, sleða og flotbretti.
Pensi sjúkrabörur en þessar börur kynntum við fyrst á árinu 2001 m.a. hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og Akureyrar.
Börurnar eru finnskar og eru fyrstu viðurkenndu fjögurra festipunkta börurnar. Við kynningu hér í Reykjavík nýttum við okkur aðferð sem
fólst í kynningu og kennslu á börurnar og að því loknu var lagður spurningalisti fyrir viðkomandi vakt. Útkoman var nokkuð góð
miðað við þann stutta tíma sem kynningin tók. Börurnar eru víða notaðar á Norðurlöndum , í Evrópu og Asíu.
Heimasíðan er www.pensi.fi Við erum með börur hér hjá okkur til sýnis og
prófunar.
Við biðjumst velvirðingar að senda ekki frá okkur bæklinga með bréfi þessu en ef þið hafið áhuga getum við sent ykkur
slíka bæklinga. Mjög greinagóðar upplýsingar eru á netinu, ásamt myndum. Veffang okkar er www.olafurgislason.is en þar finnið þið frekari upplýsingar undir slökkvilið, sjúkrabílar og búnaður,
ljós ofl.
Með bestu kveðju.
Ólafur Gíslason & Co hf. Eldvarnamiðstöðin
31 ÁR Í ÞJÓNUSTU SLÖKKVILIÐA