Kynning og kennsla á Pensi sjúkrabörum

Undanfarna daga hefur farið fram kynning á Pensi sjúkrabörum hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og Brunavörnum Suðurnesja.  Rauði kross Íslands hefur fest kaup á tveimur börum ásamt sleðum sem setja á í tvær sjúkrabifreiðar til reynslu

Pensi 2000 börurnar uppfylla EN staðla að öllu leyti og eru útbúnar á mismunandi gerðir sleða eða palla til festingar í sjúkrabifreiðum. Þessar börur eru m.a. notaðar í Finnlandi þaðan sem þær eru ættaðar, Svíþjóð, Noregi, Danmörku, Þýskalandi  og víðar utan Evrópu.

Sú gerð af sleða eða hleðslupalli sem er hér til reynslu er færanlegur til hliðar og hallalegur svo auðveldara er að renna börunum inn og út.

Pensi 2000 með lofttæmikodda og bóludýnu
Börurnar eru auðvita mjög frábrugðnar þeirri gerð sem hefur verið í notkun hérlendis enda um aðra hönnun og hugsun að ræða. Börurnar eru mjög vinnuvænar og er ætlunin með þessari kynningu að leyfa notendum að komast að að svo sé.

Það nýjasta er að hægt er að fá sérstakan hjólabúnað til að ferðast með börurnar niður tröppur. Að auki er breytt útlit þær eru gular en bygging og samsetning rammar er gerð á anna hátt. Festiólar eru af annarri gerð og fleiri möguleikar á dýnum.

Börurnar eru fjölhæfar, auðveldar í notkun, minnkar þörf á að bera sjúklinga þar sem hægt er að keyra hann frekar á hjólum. Fyrstu viðurkenndu fjögurra festipunkta börurnar. Uppfylla allra nýjustu kröfur.

Grindur og botnaplata eru úr glertrefjum. Börurnar eru léttar og meðfærilegar. Sterkar að auki. Stillanleg staða fyrir fætur og efri líkama. Gasdemparar. Stillanlegar fyrir þann sem vinnur með þær. Ólar fyrir sjúkling, hliðargrindur, formaðar hlutaðar dýnur, auka handföng og stöng fyrir vökva.

Það er ekki þörf á því að flytja sjúkling frá einu flutningstæki til annars sökum þess að öll þrep í meðhöndlun sjúklings er hægt að framkvæma á þessum fjölhæfu sjúkrabörum. Hægt er að skorða sjúkling niður og einnig að nota börurnar sem stól. Ef þörf krefur getur einn maður meðhöndlað sjúkling á börunum.

Hleðslupallur hallanlegur og færanlegur


Þessar fjölnota sjúkrabörur eru auðveldar í notkun. Lyftibúnaður er léttur og meðfærilegur og hjálpa gasdemparar þar til. Sjúkrabörurnar eru stöðugar á öllum sviðum og stór hjól auðvelda alla hreyfingu á misjöfnum flötum. Þegar börurnar eru notaðar í uppréttri stöðu (sem stóll) er hægt að nota þær til flutninga í lyftum og þröngum stigagöngum.

Vegna þess hve börurnar eru lágar þegar notaðar til flutnings á jörðu gefur það sjúklingnum aukið öryggi og eykur stöðugleika sjúkrabaranna.

Hleðslupallar eru af ýmsum gerðum til að auðvelda að setja börurnar í eða taka úr sjúkrabifreið. Sterkir og stillanlegir eftir hæð gólfs og auðveldar í notkun.

Grindurnar leiða ekki rafmagn og eru þess vegna öruggar þegar raftæki eru notuð.



Hér eru nokkrar myndir frá kynningu í Keflavík
                                                                                         Frekari upplýsingar um Pensi