Við lækkum verð á nokkrum gerðum reykskynjara og eins þráðlausum sendum fyrir sömu gerðir. Lækkunin er frá 5% til 10%.
Fyrir nokkru lækkuðum við verð á hitaskynjurum en lækkum nú verð á jónískum og optískum reykskynjurum. Sama á við
þráðlausu sendana við þessar gerðir.
Búðarverð okkar á jónískum skynjara lækkar úr kr. 1.827 í kr. 1.660
Búðarverð okkar á optískum skynjara lækkar úr kr. 2.102 í kr. 1.896
Búðarverð okkar á þráðlausum sendum lækkar úr kr. 4.212 í kr. 3.982
Það er skynsamlegt að setja upp mismunandi gerðir reykskynjara og helst samtengda.
Setjið upp jóníska, optíska og hitaskynjara á heimilinu. Helst samtengda sé þess kostur. Það eykur líkur á, að allir heyri
þegar viðvörun kemur frá skynjurunum. Lokaðar dyr koma í veg fyrir, að það heyrist vel frá skynjara, sem sendir viðvörun frá
sér.
Af hverju á að setja upp bæði jónískan og optískan reykskynjara. Hvaða efni eru algengust í umhverfinu (á heimilinu). Er það
plast, eða gerfiefni, sem brenna upp hratt með stórum og miklum ögnum. Þá á t.d. sá jóníski mun betur við. Hann bregst fyrr
við.
Ef það eru líkur á köldum reyk eða glóðarbruna t.d. í sófanum, þá bregst sá optíski fyrr við. Munið að
hér skipta sekúndur máli.
Það er ekki nóg að vera með reykskynjara í ganginum eða forstofu. Þeir eiga heima inni í svefnherbergjum. Algengt er að í svefnherbergjum
í dag séu sjónvörp, hljómflutningstæki, tölvur, hleðslutæki fyrir síma ofl. ofl. Oftast er sofið við lokaða hurð og byrji
eldur í svefnherbergi líður of langur tími til að reykur nái skynjara á svefngangi. Börn og unglingar sofa fast.
Fyrir nokkrum árum var sett gjaldtaka á jóníska skynjara og varð þá meira framboð á optískum reykskynjurum. Um leið
lækkaði verð á þeim optísku.
Margir urðu ósáttir við þessa þróun, þar sem eins og kemur fram hér að ofan, þá á jóníski reykskynjarinn
fullan rétt á tilveru sinni, þar sem hann hentar betur við ákveðnar aðstæður. Sekúndur skipta máli. Eins er talað um að hann
endist lengur.
Jónískur þráðlaus |
Optískur þráðlaus |
Hita þráðlaus |
Optíski reykskynjarinn hefur í sér svart hólf með ljósdíóðu. Komi reykur inn í hólfið endurkastast ljósið
í móttakara fyrir skynjun. Þetta hólf er hjarta skynjarans og mikilvægt, að því sé haldið hreinu. Það má gera með
að ryksuga skynjarann varlega. Stundum er talað um, að optískir reykskynjarar séu tregir. Götin á svarta hólfinu ráða þar nokkru og reynt
er að hafa stærð þeirra þannig, að ekki sé algengt að skynjari gefi frá sér ótímabæra (falska) viðvörun.
Sama á við um þann jóníska. Það þarf að ryksuga hann varlega reglulega. Sá jóníski hefur í sér opið
hólf jónunarhólf með örlítið af geislavirku efni. Rafstraumur er framkallaður reglulega og þannig jónast loftið í hólfinu.
Þegar reykur kemur í hólfið truflar það rafstrauminn og breytingin, sem þá verður kallar fram viðvörun.
Hitaskynjarar eru af tveimur gerðum. Önnur gerðin nemur hitabreytingu milli hvað 54°C til 64°C en hin gerðin nemur hve hratt hiti stígur á skömmum
tíma um einhverjar °C. Algengari eru þeir sem fyrr eru nefndir.
Hér gefur að líta samanburð á optískum og jónískum
reykskynjurum.
Við bjóðum allar gerðirnar þrjár jóníska, optíska og hitaskynjara, staka eða samtengjanlega hvort sem það er
þráðlaust eða með þráðum. Eins erum við með gasskynjara og kolsýrlingsskynjara.
Gasskynjari |
Kolsýrlingsskynjari |
Hluta af því sem fram kemur hér höfum við tekið úr grein í Sirenen nr. 3 frá í maí í fyrra, þar sem fjallað er um
skynsemina bak þess að setja upp mismunandi gerðir reykskynjara og helst samtengda.
.....Slökkvitæki, slökkvitækjaþjónusta, reykskynjarar, eldvarnateppi, brunaslönguhjól, gaskynjarar, kolsýrlingsskynjarar,
fellistigar, keðjustigar, lyfjaskápar, neyðarljós, neyðarmerki.....