Margt er líkt með skyldum

Við óskum okkur Reykvíkingum til hamingju með nýju slökkvibifreiðina. Vönduð bifreið og bygging.

Margt er líkt með skyldum en eins og þeim sem fylgjast með í þessum bransa er kunnugt um þá fengu Suðurnesjamenn fyrstu Rosenbauer/Scania slökkvibifreiðina með tvöföldu húsi í lok síðasta árs.

Margt er líkt með þessum bifreiðum en SHS bifreiðin er að mörgu leyti mjög frábrugðin þeim bifreiðum sem keyptar hafa verið til landsins undanfarin ár eins og Suðurnesja bifreiðin.

T.d. lág yfirbygging en það leystu Suðurnesjamenn með loftpúðafjöðrun. Betri vinnuaðstaða. Ýmsar nýjungar aðrar má nefna eins og blá aðvörunarljós í framhurðum, myndavél á bakhlið, útdraganlegar skúffur fyrir 4” brunaslöngur en það er eins í Suðurnesja bifreiðinni. Kannski er þetta eitthvað sem við munum sjá í fleiri bifreiðum.