Mikil sala á slökkvitækjum, reykskynjurum og tilheyrandi

Nú í desember hefur verið óvenjumikil sala á slökkvitækjum, reykskynjurum og eldvarnateppum. Við vorum nokkuð vel viðbúnir en urðum þó uppiskroppa með 6 kg. duftslökkvitæki fyrir nokkrum dögum. Í dag fengum við nokkur hundruð tæki sem við afgreiddum góðan hluta af til viðskiptavina sem biðu þolinmóðir.

Við erum vel birgir af öðrum gerðum tækja eins og 2ja kg. dufttækjum og 6 l. léttvatnstækjum en þó gengur á þau líka.

Þráðlausir samtengjanlegir skynjarar hafa fengið góðar viðtökur en við höfum lagt áherslu á að selja þá í sérstökum umbúðum þar sem sendir og móttakari ásamt skynjara er í.

SB-2008V Sendir og móttakari


Við erum langt komnir með þessar gerðir en erum einnig með staka skynjara, jóníska, optíska og hita og í sér umbúðum sendir og móttakara og það er að líkindum þær gerðir sem við verðum með áfram.

Við verðum ekki með opið á Þorláksmessu eða aðfangadag svo verið tímanlega ef þið þurfið á einhverju að halda frá okkur fyrir jólahátíðina.