Ningbo slökkvitækin komin ótrúlegt verð !!!!

Við fengum inn í gær gám af slökkvitækjum sem við ætlum í jólasöluna. Viðtökur hafa verið góðar og strax erum við búnir að afgreiða til viðskiptavina okkar nokkur bretti og við biðjum þá sem áhuga hafa á að hafa samband sem fyrst.  Ningbo slökkvitæki



Eins og áður sagði þá er verðið ótrúlega hagstætt en viðskiptavinir okkar njóta eins og ávallt hagstæðra innkaupa okkar.

Við fengum m.a. 2 kg. og 6 kg. duftslökkvitæki með mælum og er 2 kg. tækið með bílfestingu en  það 6 kg. með veggfestingu.

Eins fengum við 6 l. og 9 l. léttvatnstæki með mælum og veggfestingum.


2 kg. duftslökkvitæki


Tækin eru með ámáluðum íslenskum leiðbeiningum og eru á plastfæti öll nema 2 kg. dufttækið.

Um leið tókum við inn talsvert af varahlutum ekki bara í þessi tæki heldur ýmsar aðrar gerðir fyrir þjónustustöðvar sem þjónusta okkar tæki.

6 kg. duftslökkvitæki




Slökkvimáttur 2 kg. duftslökkvitækisins er 13A og 70 BC. Slökkvimáttur 6 kg. duftslökkvitækisins er 34A og 183 BC.







6 l. léttvatsslökkvitæki

Slökkvimáttur 6 lítra léttvatsslökkvitækisins er 13A og 144B og 9 lítra léttvatnstækisins er 27A og 183B.






Eldvarnateppi 100 x 100 sm. í flötum plastkassa


Við fengum einnig eldvarnateppi í stærðinni 100 x 100 sm. í flötum hvítum pakka.

Allt viðurkenndar vörur.

Til frekari fróðleiks lesið frétt frá því fyrr í haust.