Nú spyrjum við hvort við eigum að kaupa brunaslöngur

frá Kína ???? Við eigum samstarf við fyrirtæki sem framleiðir brunaslöngur eins og þær sem við höfum flutt inn í áratugi frá Evrópu. Hráefnið þ.e gúmmíið í slöngurnar er frá Noregi og vefstólar sen slöngurnar eru ofnar í einnig. Og verðið er í kringum 30 til 60% lægra en við eigum við að búast.
Slöngurnar koma tilbúnar með ásettum víruðum Storz A, B eða C Din tengjum í stærðunum C52 og B75 og A110. Við getum fengið slöngur í stærðunum 1 1/2", 1 3/4" (45mm), 2", 2 1/2", 3" og 4".

Rauðar gúmmíhúðaðar að utan og innan. Eins ofnar hvítar með gúmmíhúð að innan. Við eigum kost á fleiri gerðum en viljum leggja áherslur á þær gerðir sem við seljum mest af. Eins er ekki alveg víst með 45mm stærðina en eins og flestir þekkja þá er það stærð sem þekkist í Þýskalandi en sú stærð sem við höfum boðið er 42mm eins og Svíar nota.

Nú leitum við til ykkar slökkviliðsstjórar og menn og spyrjum er þetta eitthvað sem þið viljið að við flytjum inn fyrir ykkur. Eins og áður er komið fram er verðið einstakt og því kjörið að koma sé upp því magni af slöngum sem ykkur hefur lengi dreymt um og þið þurfið að hafa.

Slöngurnar eru framleiddar samkvæmt evrópskum  og bandarískum kröfum og sprengi og hitaþol er að öllu leyti sambærilegt og í við betra í öllum tilfellum í samanburði við þær gerðir sem við bjóðum í dag. Gúmmíhúðuðu slöngurnar uppfylla þá staðla sem við þekkjum m.a. BS6931 Type 3 og þær sem eru ofnar að utan eru m.a. UL listaðar.

Sendið okkur línu á  ogeld-beg@islandia.is  ef þið hafið áhuga og skrifið ykkur fyrir því magni sem þið hafið hug á skuldbindingalaust. Það væri verulega jákvætt svo við getum ákveðið hvað við tökum mikið magn af hverri stærð.

Hér fyrir neðan eru verðdæmi úr verðlista. Öll verð eru áætluð og án VSK. Ef um magnkaup verður veittur samsvarandi afsláttur og við höfum hingað til veitt. Verð er miðað við gengi USD 65,00.

Gúmmíhúðaðar brunaslöngur að utan og innan í rauðum, gulum eða bláum lit. Vinnuþrýstingur er 16 bör en sprengiþrýstingur 48 bör.

1 3/4" gúmmíhúðuð slanga að utan og innan í 20 m. rúllu með C52 tengjum á kr. 17.189.-

2" gúmmíhúðuð slanga að utan og innan í 20 m. rúllu með C52 tengjum á kr. 18.886.-

3" gúmmíhúðuð slanga að utan og innan í 20 m. rúllu með B75 tengjum á kr. 26.401.-

4" gúmmíhúðuð slanga að utan og innan í 20 m. rúllu með A110 tengjum á kr. 41.192.-

Hvítar ofnar að utan en gúmmíhúð að innan. Vinnuþrýstingur er 16 bör en sprengiþrýstingur 48 bör.
2" ofin slanga að utan  í 20 m. rúllu með C52 tengjum á kr. 8.298.-

3" ofin slanga að utan í 20 m. rúllu með B75 tengjum á kr. 14.172.-

4" ofin slanga að utan í 20 m. rúllu með A110 tengjum á kr. 25.200.-