Ný gerð af brunaslönguhjólum og skápum

Við eigum væntanleg í næstu viku nýja gerð af brunaslönguhjólum og skápum. Um takmarkað magn er að ræða í fyrstu sendingu og verð er einstakt.
Við stefnum að því að vera með þessi hjól og skápa á lager, en afgreiðslutími er sem komið er nokkuð langur, en við erum að reyna að ráða bót á því. Gera má ráð fyrir að hann sé um tveir mánuðir.

Hvert hjól fer í gegnum prófun í verksmiðju samkvæmt staðlinum EN671-,1 þar sem það er m.a. prófað með tilliti til leka með 12 bara þrýstingi. Slöngur eru styrkleikaprófaðar miðað við 12 bör, en sprengiþol þeirra er 42 bör.

Með því að smella á myndina fáið þið frekari upplýsingar.