Ný gerð af lyfjaskápum

Við erum komin með nýja gerð af lyfjaskápum úr málmi með hurð úr gleri.  Við getum boðið betra verð á þessari gerð en er á þeim gerðum sem við erum með í dag.

Lyfjaskápur


Við höfum undanfarið boðið tvær gerðir af lyfjaskápum. Eina úr plasti en hina úr málmi.  Aðra gerðina kaupum við af birgja hér innanlands en hina höfum við flutt inn frá Póllandi.

Nýja gerðin er úr málmi en með sandblásinni læsanlegri glerhurð. Með fylgja tveir lyklar. Stærðin er 30 x 30 x 12 sm. og skiptist skápurinn með hillu í miðju. Verðið er um 7% til 15%  lægra en á þeim gerðum sem við höfum verið með.