Ný gerð Eldvarnateppa

Fyrir jól verðum við með nýja gerð af eldvarnateppum. Þau eru frá sama framleiðanda og við höfum átt skipti við um áratuga skeið en nú hafa orðið verulegar breytingar á kröfum um eldvarnateppi.

Gerð sú sem við verðum með er TOPSPEC EURO en þau eru viðurkennd samkvæmt BS EN 1869:1997. Þau verða í svipuðum umbúðum þ.e. hvítum flötum kassa sem er vandaðri en áður.

Í teppunum eru þéttofnir Kelvar eldþolnir þræðir. Stærðir þær sem við verðum með á lager eru 100 x 100sm. í stað 90 x 90sm. sem er stærðin fyrir heimili. 120 x 120sm. og 180 x 180sm. fyrir þá stofnanir, vinnustaði ofl.

Samkvæmt þeim upplýsingum sem við höfum eru ekki aðrir sem bjóða eldvarnateppi samkvæmt þessum staðli í dag.