Komin er ný sending af sjúkratöskum og eigum við eftirtaldar gerðir í nokkru magni.
Komin er ný sending af sjúkratöskum og eigum við eftirtaldar gerðir í nokkru magni. Áfram sama góða verðið. Við erum með fleiri gerðir og hér má sjá yfirlit yfir þær gerðir sem við erum yfirleitt með á lager.
Medsun sjúkratöskur, súrefnistöskur, mittistöskur og bakpokar
12016
|
Vnr. 501022 Súrefnistaska Þessi taska er afar notendavæn enda er hún hönnuð af sjúkraflutningamönnum. Hún er með marga netvasa og stórt aðalhólf auk fjölda vasa undir aukahluti sem fylgja súrefnisgjöf. Taskan er með góðum ólum og endurskinsflötum.
Stærð:68 x 30 x25sm Litir: Kóngablár, rauður Efni: 100% Imervious (Vatnshelt)
|
12021A+L/RSP
|
Vnr. 501024 Súrefnistaska Vnr. 501025 Útbúnaðarvasar Bráðataska fyrir einn súrefniskút. Taskan er hönnuð til að auka hraða og skilvirkni í útköllum. Hún heldur lögun sinni og ver innihald á ferðalögum. Bólstruð EZ-Grab handföng á hliðum og þægileg bakpokaól. Áberandi endurskinsfletir og góðar festilykkjur. Innanáliggjandi netvasar með rennilás. Tveir utanáliggjandi vasar með nethólfum. Fáanlegur útbúnaðarvasi, hægri og vinstri (ekki á mynd)
Stærð: 55 x 41 x 21sm Litir: Dökkblár Efni: 1680 Denier Polyester
|
13022L/M/S |
Vnr. 501032 Fyrstuhjálpartaska
Fyrstuhjálpartaska, mittistaska.
Stærð: Medium 26 x 13 x 16sm Litir: Svartur Efni: Polyester
|
14015 |
Vnr. 501042 Áfallahjálpartaska Taskan hefur tvo hliðarvasa með rennilás, skiptispjöldum og teygjum fyrir smáhluti. Hanskavasi er ofan á töskunni. Hún opnast að fullu að ofan til að auðvelda aðgengi að innihaldi. Tvö glær rennilásahólf eru innaná lokinu undir sáraumbúðir eða annað.
Stærð: 63 x 23 x 23sm Litir: Appelsínugulur, dökkblár, rauður Efni: Polyester
|
14030 |
Vnr. 501053 Áfallahjálpartaska Fullkomnasta bráðataskan í vörulínunni. Taska og bakpoki. Hliðarvasar, hólf (stillanleg), netvasar ofl. Hönnuð af þeim sem þurfa að nota hana. Frábær ending, auðveld í þrifum og gott aðgengi að innihaldi. Vnr. 501025 Útbúnaðarvasi Fáanlegur útbúnaðarvasi, hægri og vinstri (ekki á mynd) eingöngu í dökkbláu
Stærð: 64 x 36 x 30sm Litir: Appelsínugulur, dökkblár Efni: 1000 Denier Nylon
|
14032 |
Vnr. 501055 Áfallarhjálpartaska Hólf stillanleg, axlaól, harður botn, netvasar, teygjufestingar, endavasar og hliðarvasar með hólfum og teygjum.
Stærð: 64 x 40 x 29sm Litir: Appelsínugulur, kóngablár Efni: 1000 Denier Nylon
|
16011 |
Vnr. 501061 Barkaþræðingartaska Taska undir barkaþræðingarbúnað, passar í flestar stærri töskurnar. Vel skipulögð og bólstruð taska. Nægt rými fyrir allan nauðsynlegan búnað til barkaþræðinga.
Stærð: 25 x 35 x 4,5sm Litur: Dökkblár
|
16012 |
Vnr. 501062 Lyfjagjafataska Taska undir æðaleggi og nálar til inngjafa á lyfjum eða saltlausn. Opnast eins og bók sem gefur góða yfirsýn og gott aðgengi að innihaldi töskunnar.
Stærð: 32 x 20 x 7,5sm Litur: Dökkblár
|
.....Slökkvitæki, slökkvitækjaþjónusta, reykskynjarar, eldvarnateppi, brunaslönguhjól, gaskynjarar, kolsýrlingsskynjarar, fellistigar, keðjustigar, lyfjaskápar, neyðarljós, neyðarmerki..... |