Nýir kolsýrlingsskynjarar frá Ningbo

Um jólaleytið fáum við nýja gerð af kolsýrlings (kolmónoxíð) skynjurum frá Ningbo á góðu verði.
Skynjarinn er af gerð SSA-C-01 og gengur fyrir 9V rafhlöðukubb. Skynjun er stillt við 150+/-50ppm af kolmónoxíði. Straumnotkun <20 mA við skynjun. Vinnuhitastig 4°C til 38°C.

Í mörgum ferðatækjum eins og húsbílum, hjólhýsum og fellihýsum eru slíkir skynjarar en ekki í öllum. Þar sem aðstæður eru að opinn eldur er notaður til kyndingar ætti að koma fyrir kolsýrlingsskynjara. Í sumarhús og skála er nauðsynlegt að setja kolsýrlingsskynjara.

Venjulegir reykskynjarar skynja ekki kolsýrling enda er það lofttegurn ekki reykur eða agnir.

Umbúðir verða á íslensku og mjög vandaðar íslenskar leiðbeiningar fylgja.