Nýjar gerðir af neyðarmerkingum

Við höfum fengið nýjar gerðir af neyðarmerkjum með mynd af brunaslönguhjóli og slökkvitæki. Miðarnir eru ætlaðir á skápa fyrir brunaslönguhjól.
Miðarnir eru 100x100mm rauðir og með AAA endurskini frá Jalite, en þaðan fáum við öll okkar neyðarmerki. Við erum að bíða eftir myndum til að endurgera upplýsingasíðu okkar um merkin, sem við erum með á lager og vonumst til að þær breytingar bæti upplýsingagildi síðunnar.

Eftirspurn hefur aukist sérstaklega eftir þessari gerð merkja þ.e. á brunaslönguskápa, en merkingu þeirra virðist ábótavant, sérstaklega á skápa sem geyma líka slökkvitæki.

Einnig hefur eftirspurn aukist eftir sérgerðum merkjum og má sjá hér neðar á síðunni t.d. eina gerð, sem er í Kárahnjúkavirkjun. Afgreiðslutími á slíkum merkjum er tiltölulega stuttur og verð hagstætt.






.....Slökkvitæki, slökkvitækjaþjónusta, reykskynjarar, eldvarnateppi, brunaslönguhjól, gaskynjarar, kolsýrlingsskynjarar, fellistigar, keðjustigar, lyfjaskápar, neyðarljós, neyðarmerki.....