Undanfarið höfum við tekið inn á lager nýjar gerðir af reykskynjurum og hitaskynjurum frá nokkrum birgjum. Við munum svo sjá hver eftirspurnin verður, hverjum við höldum í vöruúrvali okkar.
Hér er um að ræða staka optíska reykskynjara, þráðlaust samtengjanlega reyksskynjara og svo hitaskynjara. Við erum einnig komin með á lager vírtengda optíska reykskynjara, gasskynjara sambyggða með skynjun á kolmónoxíði og hreyfiskynjara en munum kynna þá síðar.
Optískir stakir á 9V rafhlöðu
|
305046 RM250 Smartwares optískur stakur og er þvermál skynjarans 110 mm og þykkt 33 mm. Umhverfishitastig 4°C til 38°C. Bíb hljóð 85 dB/3 m. Prufuhnappur, þöggun og gaumljós. Lætur vita þegar rafhlaða er að verða búin. 9V Carbon Zink rafhlaða. Viðvörun þegar rafhlaða er orðin léleg (40 sek. fresti). Ef ekki er rafhlaða í skynjara er ekki hægt að loka honum. Líftími rafhlöðu um ár.
|
|
305048 GS506 Siterwell optískur stakur og er þvermál skynjarans 100 mm og þykkt 35 mm. Umhverfishitastig 4°C til 38°C. Bíb hljóð 85 dB/3 m. Prufuhnappur og gaumljós. Lætur vita þegar rafhlaða er að verða búin. 9V Carbon Zink rafhlaða. Viðvörun þegar rafhlaða er orðin léleg (40 sek. fresti). Ef ekki er rafhlaða í skynjara er ekki hægt að loka honum. Líftími rafhlöðu um ár.
|
Hitaskynjarar stakir á 9V rafhlöðu
|
305073 RM127K Smartwares 9V hitaskynjari stakur. og er þvermál skynjarans 110 mm og þykkt 45 mm. Umhverfishitastig -10°C til 50°C. Skynjun við 70°C. Bíb hljóð 85 dB/3 m. Prufuhnappur og gaumljós. Lætur vita þegar rafhlaða er að verða búin. 9V Carbon Zink rafhlaða. Viðvörun þegar rafhlaða er orðin léleg (40 sek. fresti). Ef ekki er rafhlaða í skynjara er ekki hægt að loka honum. Líftími rafhlöðu um ár.
|
|
305075 GS401 Siterwell 9V hitaskynjari stakur. og er þvermál skynjarans 110 mm og þykkt 45 mm. Umhverfishitastig 4°C til 44°C. Skynjun við 50°-68°C. Bíb hljóð 85 dB/3 m. Prufuhnappur og gaumljós. Lætur vita þegar rafhlaða er að verða búin. 9V Carbon Zink rafhlaða. Viðvörun þegar rafhlaða er orðin léleg (40 sek. fresti). Ef ekki er rafhlaða í skynjara er ekki hægt að loka honum. Líftími rafhlöðu um ár.
|
Samtengjanlegir optískir reykskynjarar á rafhlöðum
|
305096 FA21RF Optískir þráðlausir samtengjanlegir 9V + 3xAA reykskynjarar. Hámarks drægi í fríu milli tveggja er 40m. Samtenging að hámarki 15 stk. í hóp. 433.92 mHz tíðni. Ganga á einu stk. af 9V rafhlöðukubb og þremur stk. af 1,5V AA rafhlöðum. Umhverfishitastig -5°- 40°C. Prófunarhnappur (Test) , gaumljós sem sýnir ljós við skynjun og ljós (Learn) ef samtenging er í lagi og þegar verið er að samtengja. Viðvörun ef rafhlaða er að klárast. Ekki hægt að setja upp nema rafhlöður séu í skynjara. Gæta þarf að allar rafhlöður séu í skynjaranum. 9V rafhlaðan er fyrir skynjun en AA rafhlöðurnar fyrir þráðlausa sendingu/móttöku. Þvermál 130mm og þykkt 50mm.
Samtengileiðbeiningar
|
|
305098 GS558 Optískir þráðlausir samtengjanlegir 2xAA reykskynjarar. Hámarks drægi í fríu milli tveggja er 20m. Samtenging að hámarki 15 stk. 433.92 mHz tíðni. Umhverfishitastig -5°- 40°C. Prófunarhnappur, þöggunarhnappur og gaumljós sem sýnir ljós við skynjun, þöggun og samtengingu. Viðvörun ef rafhlaða er að klárast. Ekki hægt að setja upp nema rafhlöður eru í skynjara. Þvermál 120mm og þykkt 40mm.
Samtengileiðbeiningar
|
|
305095 RC-421 WL Optískir þráðlausir samtengjanlegir 9V reykskynjarar. Hámarks drægi í fríu milli tveggja er 50m. Samtenging að hámarki 50 stk. 433.92 mHz tíðni. Ganga á einni 9V rafhlöðu. Prófunarhnappur, gaumljós sem sýnir rautt ljós við skynjun en grænt ljós ef samtenging er í lagi. Viðvörun ef rafhlaða er að klárast. Ekki hægt að setja upp nema rafhlaða sé í skynjara. Litlir um sig (11 sm. í þvermál). Skynjararnir eru seldir tveir saman.
Samtengileiðbeiningar
|
Ef þið hafið áhuga á frekari upplýsingum um skynjarana eða viljið panta sendið á oger@oger.is eða hringið í síma 5684800.