Nýjar gerðir af reykkafarahettum

Um áratuga skeið höfum við keypt frá Fire Brigade í Bandaríkjunum reykkafarahettur bæði úr Nomex Lenzing efnum og PBI efnum.
Nú eru þeir góðu menn komnir á eftirlaun og ekki vitað þegar þetta er skrifað hvort eða hverjum þeir selja framleiðsluréttinn og tækin til að sauma hetturnar. Eins höfum við keypt frá þeim töskur en þeir hafa þegar selt þann þátt frá sér og við megum því búast við að geta keypt þær töskur áfram. Þó er það ekki víst að það verði fljótlega.

Quest reykkafarahettur Sökum þess að hetturnar hafa reynst vel þá leituðum við til annars birgja okkar í Bandaríkjun sem einnig hefur selt þessar hettur og báðum hann að finna fyrir okkur sambærilegar hettur og hann hefur nú þegar sent okkur upplýsingar um þær og við pantað fyrstu sendingu.

Við eigum að vísu eitthvað eftir af Fire Brigade hettunum en ef salan verður eins og verið hefur klárast þær birgðir fljótt.

Hér er bæklingur yfir nýju gerðirnar. Það eru tvær gerðir sem við munum verða með á lager en það eru gerðirnar ULFRNOH2E-07 úr Nomex Lenzing efnum og ULPBH2B2E-07 úr PBI.