Nýjar gerðir af slökkvitækjum


Við höfum nú fengið tvær nýjar gerðir af Ogniochron slökkvitækjum 2kg. duftslökkvitæki og 2 l. léttvatnsslökkvitæki á m.a. feitiselda.

2 kg. dufttækið er af GP-2x ABC/PM gerð og afköstin eru 13A 89B C. Tækið er með mæli og bílfestingu.

2 l. léttvatnstækið er af GWG-2x ABF gerð og afköstin eru 5A 34B 25F en þetta tæki hentar ákaflega vel á matarolíu og feitiselda. Tækið er með mæli og veggfestingu.

Ef smellt er á myndirnar má sjá bæklinga með frekari upplýsingar.

 Ogniochron 2 kg. dufttæki  2 l. léttvatnstæki á feitiselda



Verðið á 2 kg. dufttækinu er mun betra en það sem við bjóðum í öðrum gerðum og léttvatnstækið er nýtt af nálinni í okkar línu en við teljum það vera á mjög góðu verði.